Háönninni er lokið og nú er góður tími til að líta til baka. Hvað gekk vel í sumar? Hvar vantaði þekkingu eða þjálfun? Flestir stjórnendur hafa tilfinningu fyrir því, en fæstir hafa tíma til að spyrja alla starfsmenn með skipulögðum hætti.
Hvaða þekkingu þarf starfsfólkið að efla? Hvar er mest þörf á þjálfun? Og hvernig tryggjum við að tími og fjármunir sem fara í fræðslu nýtist sem best?
Svörin leynast oft hjá starfsfólkinu sjálfu.
Á Menntamorgni ferðaþjónustunnar 14. október síðastliðinn kynnti Hæfnisetrið nýjar stafrænar fræðslukannanir sem auðvelda stjórnendum að fá yfirsýn yfir fræðsluþarfir starfsfólks. Kannanirnar eru nú aðgengilegar án endurgjalds á stafrænu vinnusvæði Hæfnisetursins.

Þú þarft ekki að byrja frá grunni
Í boði eru 11 tilbúnar fræðslukannanir fyrir ólík störf í ferðaþjónustu, auk starfsánægjukönnunar. Sniðmátin eru á íslensku og ensku og taka meðal annars mið af störfum í gestamóttöku, veitingaþjónustu, afþreyingu, bílaleigum og þrifum.
Fyrirtæki geta valið sniðmát, aðlagað spurningar að eigin starfsemi og lagt könnun fyrir starfsfólk. Svörin geta hjálpað stjórnendum að forgangsraða fræðslu og taka upplýstari ákvarðanir um þjálfun og hæfniþróun.
Þróað í samstarfi við ferðaþjónustuna
Fræðslukannanirnar voru þróaðar í samtali og rýni við 20 ferðaþjónustufyrirtæki og fagnefndir Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), svo þær tækju mið af raunverulegum störfum og þörfum greinarinnar.
Verkefnið var unnið með þróunarstyrk frá starfsmenntasjóðunum Starfsafli, Landsmennt og Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks.
Hver er ávinningurinn?
Með niðurstöðurnar í höndunum geta stjórnendur betur áttað sig á hvar fræðslu er þörf og forgangsraðað næstu skrefum. Þá má nota spurningarnar sem undirbúning fyrir starfsmannasamtöl. Þannig nýtist sama vinnan, líka í minnstu fyrirtækjunum.
Lausnin er gjaldfrjáls og aðgengileg á stafrænu vinnusvæði Hæfnisetursins.
Kynntu þér fræðslukannanirnar og prófaðu lausnina á haefni.is/fraedslukannanir.
-1.png)