Íva Sigrún Björnsdóttir hóf störf hjá Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins nú í ágúst og verður í 50% starfshlutfalli hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. Íva er með MA-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og kennsluréttindi og diplómu í verkefnastjórnun frá sama skóla. Íva starfaði um árabil innan stjórnsýslunnar þar sem hún sinnti verkefnum á sviði stefnumótunar, fræðslu og mannauðsmála, auk þess að koma að fjölbreyttum þróunar- og umbótaverkefnum á sviði menntunar. Samhliða því hefur hún rekið ferðaþjónustufyrirtæki á Suðurlandi ásamt systkinum sínum og föður. Sú reynsla hefur veitt henni góða þekkingu á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar og þeim áskorunum og tækifærum sem atvinnugreinin stendur frammi fyrir.
Við fögnum þessum öfluga liðsauka til Hæfnisetursins!
 

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?