Nám og námskeið

Námskeið fyrir ferðaþjónustu

Fræðsluaðilar um land allt eru tilbúnir að hjálpa þínu fyrirtæki að ná árangri. Hér getur þú fundið ýmis hagnýt námskeið innan þíns sviðs.

Filters

Núvitund á gervihnattaöld

Verum viðstödd í eigin lífi

Hraði í samfélaginu er mikill, kröfur nútímans eru miklar og við erum að hugsa um og gera fjölmarga hluti í einu. Við fljótum stundum í gegnum daginn ómeðvituð um okkur sjálf og umhverfi okkar því við erum með hugann við verkefnalistann og allt sem þarf að muna, skipuleggja, gera og græja og allt það sem áður hefur gerst sem hefði mátt betur fara. Hve mikinn þátt erum við að taka í eigin lífi?

Samskipti og mannauðsmálStjórnun

Vinnuvernd

Vinnuumhverfi og líkamsbeiting

Fræðsluerindi og námskeið

Sérfræðingar á vinnuumhverfissviði sinna fjölbreyttri fræðslu er snýr að líkamsbeitingu starfsfólks og aðlögun vinnuumhverfis. Við bjóðum bæði upp á staðlaða fræðslu og fræðslu sem unnin er sérstaklega fyrir vinnustaði með þeirra þarfir í huga. Vinnuumhverfissvið býður fræðslu um líkamsbeitingu við skrifstofustörf, líkamleg störf, raddbeitingu o.fl.

Öryggi

Vinnuvernd

Leiðsöguskólinn

Leiðsöguskólinn hefur starfað frá árinu 1976 og hafa á þessum árum rúmlega 1.500 leiðsögumenn útskrifast frá skólanum. Námið er bæði víðfeðmt og fjölbreytt og mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar þannig að nemendur séu sem best undirbúnir undir að leiðsegja erlendum ferðamönnum um Ísland að námi loknu. Fjallað er m.a. um jarðfræði Íslands, sögu og menningu, gróður, dýralíf, atvinnuvegi og íslenskt samfélag sem og bókmenntir og listir. Nemendur eru fræddir um helstu ferðamannastaði á Íslandi, ferðamannaleiðir, náttúruvernd, umhverfismál, öryggismál og leiðsögutækni. Fyrirlesarar, kennarar og leiðbeinendur eru allir sérfróðir um einstaka málaflokka.

LeiðsögnLand og menning

Leiðsöguskólinn

From Vikings to Volcanoes

A Practical Course for Front Line

A practical and engaging course for front-line tourism staff who want to confidently share Icelandic history and culture with guests, through captivating stories, clear facts, and practical tips you can use the very next day. ✔ Learn to tell memorable stories about Icelandic history and landmarks. ✔ Build confidence when interacting with guests from around the world. ✔ Understand key events in Iceland’s history – and how to make them relatable. ✔ Enhance communication by connecting culture with real places and moments. ✔ Apply storytelling techniques that inspire and inform. Who is this course for? This course is ideal for front-line tourism professionals – receptionists, guest service reps, hotel staff, museum or tour employees – anyone who interacts with guests and wants to offer more than just directions.

LeiðsögnLand og menning

Gerum betur

Námskeið hjá Félagi fjallaleiðsögumanna

Þjálfunarkerfinu er skipt upp í þrjá þætti, jöklaleiðsögn, fjallaleiðsögn og skíðaleiðsögn. Grunnþjálfun í jóklaleiðsögn tekur 4 daga og fer fram á skriðjökli. Farið verður yfir helstu atriði jöklaleiðsagnar svo sem leiðarval sprungubjörgun, ísklifur, samskipti við gesti og hópstjórn.

LeiðsögnLand og menning

Félag íslenskra fjallaleiðsögumanna

Kynningartækni

Sérsniðið námskeið í kynningatækni fyrir einstaklinga eða hópa. Námskeiðið nýtist stjórnendum, sölufólki og í raun öllum þeim sem vilja koma fram fyrir hönd síns fyrirtækis á áhrifaríkan og vandaðan hátt. Við leggjum mikla áherslu á að þátttakendur fái sérsniðna þjálfun út frá sínum styrkleikum, að þeir efli kynningartækni sína og geti sett málefni fram á skipulagðan og áhrifaríkan hátt. Við kennum þátttakendum aðferðir sem hjálpa þeim að byggja upp öflugar og skemmtilegar kynningar. Fyrir hverja Kynningartækni KVAN er fyrir alla þá sem vilja auka hæfni sína og getu við að kynna t.d. verkefni, hugmyndir og stefnu fyrirtækja á áhrifaríkan, skemmtilegan, hvetjandi og faglegan máta. Námskeiðið hentar bæði stjórnendum sem og öðrum starfsmönnum sem þurfa að koma fram fyrir hönd sinna fyrirtækja og stofnana.

Markaðssetning

Kvan

Viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur

Stafræn markaðssetning og vöxtur fyrirtækja byggist í auknum mæli á gagnaöflun, sjálfvirknivæðingu og sérsniðnum aðferðum sem skapa skjótan og sjálfbæran árangur. Þetta metnaðarfulla námskeið hjá Akademias, í samstarfi við Datera, er hannað fyrir markaðsfólk, stjórnendur, frumkvöðla eða einstaklinga sem vilja læra hvernig nýta má growth hacking, gervigreind og stafrænar markaðsaðferðir til að ná meiri árangri. Áhersla er lögð á aðferðir sem styðjast við gögn, mælingar og tilraunir til að hámarka árangur í markaðsstarfi. Þátttakendur læra að vinna með stafrænar auglýsingar, leitarvélabestun, samfélagsmiðla, CRM kerfi og tölvupóstmarkaðssetningu, ásamt því að tileinka sér notkun gervigreindar í markaðssetningu.

Markaðssetning

Akademias

Íslenska fyrir útlendinga

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

MSS býður upp á námskeið í íslensku 1-5 á námskeiðunum er lögð áhersla á skiling og talað mál, auk ritunar, hustunar, lesturs og er málfræði fléttuð inn í námsefni. Auk þess bjóðum við upp á starfstengd íslenskunámskeið fyrir fyrirtæki. MSS offers courses in Icelandic 1-5, courses focus on comprehension and spoken language, as well as writing, hearing, reading, and grammar is integrated into the curriculum. In addition, we offer vocational Icelandic courses for companies.

Íslensk tunga

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Íslenska fyrir útlendinga

Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Unnið er með þætti sem tengjast daglegu lífi og störfum með það að markmiði að auka orðaforða. Lögð er áhersla á að nemendur geti gert sig skiljanlega og tekið þátt í einföldum samræðum um dagleg málefni. Allir þættir tungumálsins eru þjálfaðir. Námskeiðið er aðlagað nemendahópnum og því geta áherslur verið mismunandi milli hópa.

Íslensk tunga

Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Íslenskunámskeið

Símenntun á Vesturlandi

Símenntun á Vesturlandi býður upp á sérsniðin námskeið eftir óskum og eftirspurn. Námskeiðin eru af ýmsum toga og eru kennd víða á Vesturlandi. Sum námskeið eru sett á dagskrá reglulega en önnur eru haldin í samræmi við eftirspurn.

Íslensk tunga

Símenntun á Vesturlandi

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?