Hvað ef þú gætir sparað þér nokkra klukkutíma í hverri viku, án þess að ráða nýtt fólk eða kaupa dýran hugbúnað?
⏰Á næsta Menntamorgni sýnum við í verki hvernig gervigreind getur létt á daglegum rekstri í ferðaþjónustu. Þetta er hagnýtur fundur með sýnikennslu og þú getur fylgst með hvar sem þú ert, þriðjudaginn 1. desember kl. 11:00–12:00 á Zoom.
Gervigreindin sjálf er líka á mælendaskrá. Í upphafi fundar leggur Jóhannes Þór Skúlason fyrir hana verkefni. Hún vinnur það á meðan aðrir fyrirlesarar tala og í lokin sjáum við afraksturinn.
Dagskrá
Fundarstjóri: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF og formaður stýrihóps Hæfnisetursins
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Hótel Breiðdalsvík: hvernig hótelið nýtir gervigreind í rekstrinum
Valur Heiðar Sævarsson, stofnandi Your Friend in Reykjavík: Claudette klárar málið - frá fundabókunum á ferðasýningum til eigin rekstrartóla, allt með gervigreind
Fundurinn er ókeypis og opinn öllum í ferðaþjónustu!
📅 Taktu frá morguninn 1. desember.
Hlekkur á viðburð og fyrirkomulag á Zoom verða kynnt hér þegar nær dregur.
Skráðu þig hér:
👉https://haefni.is/vidburdir
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar er samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar, og Markaðsstofa landshlutanna.


