
Starfsánægja, starfsþróun og sterkari rekstur
Hvernig höldum við í gott fólk?
Að ráða gott fólk er eitt - að halda í það er annað
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar fara nú aftur í gang með lækkandi sól en þeir eru opnir og ókeypis fræðsluviðburðir fyrir starfsfólk og stjórnendur í ferðaþjónustu í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna. Á Menntamorgnum beinum við ásamt góðum gestum, sjónum að fjölbreyttum málefnum sem snerta ferðaþjónustuna og hvernig við aukum hæfni, fagmennsku og samkeppnishæfni innan greinarinnar. Á fyrsta viðburði vetrarins miðvikudaginn 14.okt ætlum við að ræða starfsmannaveltu, hvað fær gott starfsfólk til að vilja vera áfram, hvað ýtir undir helgun í starfi og hvernig öflug vinnustaðamenning og tækifæri til starfsþróunar geta styrkt bæði fólk og fyrirtæki.
Á dagskrá verða sögur og hagnýt dæmi úr atvinnulífinu., auk nýrra lausna frá Hæfnisetrinu sem geta nýst stjórnendum við að efla starfsfólk og byggja upp sterkari vinnustaði.

Dagskráin er sem hér segir:
Miðvikudagur 14.okt 11:00 -12:00 í beinu streymi á Facebook.
- „Við viljum öll vera memm". Kristjana Milla Snorradóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Travel Connect fjallar um helgun í starfi og hvað fyrirtæki geta gert til að skapa vinnuumhverfi þar sem gott fólk vill leggja sitt af mörkum og vera áfram.
- „Ekki giska, spurðu starfsfólkið". Sigríður Pjetursdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar kynnir nýjar fræðslukannanir fyrir ferðaþjónustuna sem auðvelda fyrirtækjum að greina fræðsluþarfir starfsfólks og styðja markvisst við hæfni og þróun.
- „Af hverju hættir fólk og hvað kostar það þegar upp er staðið?"Eva Ýr Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Íslenskri fjárfestingu fer í saumana á því hvers vegna starfsfólk hættir og dulda kostnaðinn við starfsmannaveltu.
- „"Janis Schwenke, mannauðsstjóri Friðheima fjallar um þeirra reynslu af því að halda í gott starfsfólk.
Fundarstjóri er Kristján Bjarki Jónasson verkefnastjóri hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Skráning 👉 hér