fimmtudagur, maí 21, 2026

Global Accessibility Awareness Day

Dagur tileinkaður bættu aðgengi

Hæfni
header image

Í dag er haldið upp á Global Accessibility Awareness Day. Dagurinn snýst í grunninn um að minna okkur á að aðgengi er ekki sérlausn fyrir fáa og snýst um þátttöku, virðingu, öryggi og sjálfstæði fólks. Um að öll geti upplifað heiminn á eigin forsendum. Í dag lifa yfir einn milljarður manna með einhvers konar fötlun eða skerðingu og samt er ferðalag enn of oft fullt af hindrunum sem flest okkar taka ekki eftir. Í tilefni dagsins bauð Ferðamálastofa upp á viðburðinn ,,Bætt aðgengi – betri upplifun” á Teams fyrir ferðaþjónustuaðila, en markmið viðburðarins var að veita innsýn, kveikja umræðu og styðja ferðaþjónustuaðila í að taka raunhæf skref í átt að bættu aðgengi.

Aðalfyrirlesari var Shane Hryhorec, ástralskur áhrifavaldur, frumkvöðull og öflugur talsmaður bætts aðgengis. Í erindi sínu deildi hann sögu og reynslu sinni af ferðalögum um heiminn sem hjólastólanotandi. Það var sérstaklega áhrifamikið og lærdómsríkt að hlusta á Shane og fá að sjá myndbönd þar sem hann deildi reynslu sinni af mjög slærmi reynslu við innritun í flug, þar sem aðstæður voru niðurlægjandi, afar langdregnar og streituvaldandi. En hann deildi einnig með okkur góðri reynslu af strönd þar sem allt var til fyrirmyndar og hann fékk að upplifa frelsi, virðingu og þátttöku eins og aðrir gestir. 

Það var einnig fróðlegt að heyra frá Sky Lagoon þar sem Vilborg Ásta Árnadóttir, gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri, sagði frá því hvernig hugað hefur verið að góðu aðgengi fyrir fatlaða í einu vinsælasta baðlóni landsins. Hún fór yfir hvernig unnið hefur verið markvisst að því að hanna upplifun sem tekur mið af fjölbreyttum þörfum gesta, ásamt þeim áskorunum og tækifærum sem fylgja slíku starfi. Vilborg tók fyrir nokkru þátt í viðburði á okkar vegum þar sem bar yfirskriftina ,,Ferðalag án hindrana” þar sem rætt var um aðgengi í ferðaþjónustu og mikilvægi þess að skapa upplifun sem hentar öllum.

Íslensk ferðaþjónusta vill vera fremst í flokki þegar kemur að gæðum og upplifun gesta. En ef fólk kemst ekki inn, fær ekki upplýsingar, upplifir óöryggi eða þarf stöðugt að biðja um hjálp, þá er upplifunin ekki góð. Þá erum við ekki komin alla leið.

Aðgengi þarf að vera hluti af hugsuninni frá upphafi; í hönnun, upplýsingagjöf, þjálfun starfsfólks, vefsíðum, samgöngum og í þjónustunni sjálfri. Og kannski mikilvægast af öllu - í viðhorfinu okkar.

Þá er líka mikilvægt að minna á verkefnið „Gott aðgengi í ferðaþjónustu“ sem Ferðamálastofa stendur að og er ætlað öllum þeim sem vilja bæta aðgengismál í sínu fyrirtæki.

Að lokum viljum við hvetja stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu til að hlusta á reynslusögur fólks eins og Shane Hryhorec og læra af þeim. Aðgengi er ekki lokaáfangastaður heldur stöðugt samtal og stöðug þróun. Ísland hefur alla burði til að standa framarlega í þessum málum, en það gerist aðeins ef við veljum að halda áfram að hlusta, læra og bæta okkur.

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?