fimmtudagur, október 15, 2026
Vel sóttur Menntamorgunn ferðaþjónustunnar 14.október 2026
Hvað fær gott starfsfólk til að vera áfram?

Hvernig geta ferðaþjónustufyrirtæki dregið úr starfsmannaveltu og skapað vinnustað þar sem fólk vill vera áfram?
Við spyrjum gjarnan hvers vegna fólk hættir í vinnunni. En hversu oft spyrjum við hvað fái það til að vera áfram? Þessi spurning var meðal þess sem rætt var á vel sóttum Menntamorgni ferðaþjónustunnar þann 14. október, þar sem fjórir góðir gestir deildu reynslu sinni og hagnýtum ráðum.
Eva Ýr Gunnlaugsdóttir,framkvæmdastjóri mannauðs hjá Íslenskri fjárfestingu benti á að starfsmannavelta kostar fyrirtæki töluvert meira en sést í bókhaldinu. Þegar gott fólk hættir fer ekki einungis tími og orka í ráðningar og nýliðaþjálfun heldur tapast dýrmæt þekking og afköst, auk þess sem álag eykst á þau sem eftir eru. Hún hvatti stjórnendur til að eiga regluleg samtöl við starfsfólk og spyrja hvað fái það til að vera áfram – áður en það ákveður að hætta.
Kristjana Milla Snorradóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Travel Connect, lagði áherslu á að fólk vilji upplifa að það tilheyri. Hún sýndi hvernig traust og sterk vinnustaðamenning verða til í daglegum samskiptum, skýrri upplýsingagjöf og einföldum hlutum eins og að sýna samstarfsfólki einlægan áhuga og hrósa fyrir vel unnin störf.
Sigríður Pjetursdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar, ræddi mikilvægi þess að spyrja starfsfólkið sjálft hvaða fræðslu það þarf. Hún kynnti nýjar, stafrænar fræðslukannanir sem auðvelda fyrirtækjum að greina fræðsluþarfir og skipuleggja markvissa starfsþróun. Kannanirnar eru aðgengilegar án endurgjalds á stafrænu vinnusvæði Hæfnisetursins.
Janis Schwenke, mannauðsstjóri Friðheima, deildi reynslu fyrirtækisins af því að byggja upp sterkan starfsmannahóp og eftirsóknarverðan vinnustað. Þar skipta skipulögð móttaka nýliða, regluleg þjálfun, góð samskipti og fyrirsjáanlegar vaktir máli. Áherslan er ekki aðeins á að fólk standi sig vel í vinnunni heldur að það geti líka átt gott líf utan hennar.
Sameiginleg skilaboð erindanna voru skýr: Að halda í gott fólk snýst ekki eingöngu um launin heldur líka um góða stjórnarhætti, traust, upplýsingagjöf, starfsþróun og það að starfsfólk finni að það skipti máli.
Horfðu á upptökuna hér fyrrir neðan:
