
Hildur Betty Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri
Hæfniseturs ferðaþjónustunnar
Árið 2025 var viðburðaríkt í starfsemi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar. Einkenndist það af áframhaldandi uppbyggingu, þéttara samstarfi við alla hagaðila og markvissri þróun verkefna sem styðja við hæfni, fagmennsku og gæði í íslenskri ferðaþjónustu. Allt frá árinu 2017 hefur það verið hlutverk Hæfnisetursins að vera brú á milli atvinnulífs, skóla og stjórnvalda, að vinna að því að styrkja fólkið í greininni og efla hæfni og þjálfun til framtíðar. Á þeim árum sem liðin eru hefur Hæfnisetrið vaxið og þróast í takt við þarfir ferðaþjónustunnar. Starfsemin hefur tekið breytingum, frá því að snúast fyrst og fremst um uppbyggingu samstarfs og greiningu þarfa yfir í að bjóða upp á lausnir sem valdefla fólk og fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Verkefni okkar eru nú fjölbreyttari en áður og spanna allt frá þjálfun starfsfólks og vinnustofum yfir í stafrænar lausnir, sjálfbærni og öryggismál. Þessi þróun sýnir glöggt hve mikilvægt það er fyrir ferðaþjónustuna að hafa aðgang að hagnýtum og aðgengilegum lausnum um allt land.
Framundan eru áfram fjölbreytt og metnaðarfull verkefni. Með nýjum samningi við atvinnuvegaráðuneytið er ábyrgð Hæfnisetursins skýr: Við eigum að leiða kynningu á hæfniuppbyggingu, námi og gæðum innan greinarinnar. Framtíðarsýn Hæfnisetursins er að vera áfram leiðandi vettvangur fyrir hæfniþróun í ferðaþjónustu, með skýrar námsleiðir, öflugt raunfærnimat og hagnýtar lausnir sem styðja við gæði og samkeppnishæfni greinarinnar. Árangurinn veltur á því hversu vel okkur tekst að tvinna saman krafta atvinnulífs, stjórnvalda og menntakerfisins.
Kærar þakkir til allra sem hafa lagt Hæfnisetrinu lið á árinu. Árangurinn og sú þróun sem við höfum séð er ykkur að þakka. Samstarfið, metnaðurinn og þekkingin sem þið komið með að borðinu er lykillinn að öllu því sem við gerum og forsenda þess að við höldum áfram að gera vel.
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar er mikilvægur tengiliður á milli menntunar og atvinnulífs. Frá stofnun þess árið 2017, hefur Hæfnisetrið unnið ötullega að því að styðja við fræðslu, hæfniuppbyggingu, gæði og faglega þróun greinarinnar. Hlutverk Hæfnisetursins er að greina fræðsluþarfir ferðaþjónustunnar, miðla þeim til fræðsluaðila og leiða samtal um þróun náms. Með hagnýtum lausnum, markvissri miðlun og nánu samstarfi við atvinnugreinina og aðra hagsmunaaðila, styður Hæfnisetrið við sjálfbæra starfsemi og stuðlar að bættri samkeppnisstöðu og faglegum vinnubrögðum í ferðaþjónustu.
Hæfnisetrið starfar samkvæmt þjónustusamningi við atvinnuvegaráðuneytið og gildir núverandi samningur til loka árs 2026. Hæfnisetrið er vistað hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Lausnir sem styrkja fólk
og fyrirtæki í ferðaþjónustu
Árið einkenndist af metnaðarfullri markaðsáætlun þar sem áherslan færðist úr því að kynna tilvist Hæfnisetursins yfir í markvissa miðlun á sértækum lausnum og fagmennsku. Ásýnd Hæfnisetursins er nú sterkari en nokkru sinni fyrr, sem sýndi sig í vel heppnuðum Menntamorgnum og yfirgripsmikilli hringferð um landið þar sem þarfir hvers landshluta voru í brennidepli.
Kynningarstarfið á árinu var einstaklega kraftmikið og krafðist mikils skipulags. Gott dæmi um heildstæða nálgun var innleiðing á Ferðapúlsinum. Sú vinna fól í sér allt frá nafngift og hönnun vörumerkis yfir í formlega opnun atvinnuvegaráðherra og víðtæka herferð á samfélagsmiðlum í kjölfarið. Fyrir hvern viðburð ársins var útbúið sértækt markaðsefni fyrir Facebook, Instagram og aðra miðla, sem skilaði sér í metsókn á vef Hæfnisetursins. Alls voru unnin átta slík stórverkefni á árinu auk þriggja Menntamorgna.
Algjör tímamót eru orðin með opnun nýrrar vefsíðu sem boðar byltingu í þjónustu við markhópa okkar. Vefurinn er nú orðinn miðstöð sem ferðaþjónustan getur nýtt sér til að sinna innri starfsemi og hæfniuppbyggingu. Þar gegnir stafræna vinnusvæðið lykilhlutverki en það stækkar stöðugt með nýjum og fjölbreyttari sniðmátum sem gera alla úrvinnslu notendavænni.
Mikill árangur náðist með skýrri stefnu og ljóst er að á næstu árum mun Hæfnisetrið sækja enn frekar fram. Fram undan er samfellt kynningarstarf yfir allt árið þar sem áhersla verður lögð á að heimsækja fyrirtæki til að tryggja að lausnir okkar nýtist til raunverulegrar verðmætasköpunar og aukinnar fagmennsku í íslenskri ferðaþjónustu.

Á árinu var lögð aukin og markviss áhersla á kynningarmál, með sérstakri áherslu á stefnumótandi endurhönnun nýs vefjar fyrir Hæfnisetrið. Verkefnið fól í sér að styrkja sjónræna ímynd stofnunarinnar, bæta aðgengi að upplýsingum og efla miðlun á hlutverki, þjónustu og gildi Hæfnisetursins.
Meðalfjöldi stöðugilda hjá Hæfnisetrinu var 3,2.

