Ávarp atvinnuvegaráðherra
Hanna Katrín Friðriksson

Hanna Katrín Friðriksson,
atvinnuvegaráðherra

Ferðaþjónusta er ein af burðarstoðum íslensks atvinnulífs og byggir árangur sinn m.a. á hæfni, fagmennsku og ábyrgð þess fólks sem starfar í greininni. Í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi, þar sem kröfur um sjálfbærni, tæknilæsi og gæði aukast stöðugt, verður markviss hæfniuppbygging sífellt mikilvægari.

Frá árinu 2017 hefur Hæfnisetur ferðaþjónustunnar gegnt lykilhlutverki í að efla þekkingu og færni stjórnenda og starfsfólks, í nánu samstarfi við atvinnulíf, menntastofnanir og stjórnvöld. Starfsemin hefur stutt við þau markmið sem sett hafa verið um fagmennsku, gæði og samkeppnishæfni greinarinnar.

Til framtíðar, í ljósi ferðamálastefnu til ársins 2030, verður áfram lögð áhersla á að styrkja tengsl menntunar og atvinnulífs, efla aðgengi að raunfærnimati og þróa verkfæri sem styðja við stafræna þróun, sjálfbærni og öfluga mannauðsstjórnun. Hæfnisetrið mun áfram vera leiðandi vettvangur samvinnu og þekkingar sem tryggir að íslensk ferðaþjónusta þróist sem sjálfbær, þekkingardrifin og alþjóðlega samkeppnishæf atvinnugrein.

Ég þakka Hæfnisetrinu og samstarfsaðilum þess fyrir mikilvægt framlag og hlakka til áframhaldandi samstarfs.

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?