Samtal og samstaða skila árangri

Hringferð um landið

Samstarf Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa landshlutanna og Samtaka ferðaþjónustunnar hefur styrkst og fest sig í sessi á undanförnum árum, öllum aðilum til hagsbóta og ekki síst fyrirtækjum í greininni. Fyrir Hæfnisetrið er samvinnan lykilforsenda þess að tengjast fyrirtækjum víðs vegar um landið og fá fram fjölbreytt sjónarhorn sem endurspegla ólíkar aðstæður og starfsemi innan greinarinnar.

Í apríl og maí héldu Hæfnisetrið, Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofur landshlutanna sameiginlega sjö fræðsluviðburði fyrir ferðaþjónustuna vítt og breitt um landið í samstarfi við símenntunarmiðstöðvarnar á hverju svæði. Efnistökin voru valin út frá því hvaða mál væru ofarlega á baugi á hverju landsvæði fyrir sig og voru fundirnir bæði fjölbreyttir og fróðlegir. Fræðsluviðburðirnir voru vel sóttir og það er ljóst að viðfangsefni ferðaþjónustunnar eru alltaf fjölmörg og margbreytileg enda atvinnugrein sem snýst um fólk og samskipti fyrst og fremst.

Um 260 manns skráðu sig á fundaröð um landið
Hringferð um landið

Upplifanir verða ekki til af sjálfu sér

Helen Hannesdóttir

Helen Hannesdóttir,forstöðumaður þróunar- og þjónustusviðs
Ferðamálastofu og meðlimur stýrihóps
Hæfniseturs ferðaþjónustunnar

Mér fannst ég vera knúin til að skrifa um tengingu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar og upplifunarhagkerfisins (e. the experience economy), þegar beiðni um pistil barst í hús. Undirrituð hefur haldið á lofti setningunni „keyptu upplifanir, ekki hluti” (buy experiences, not things) á samfélagsmiðlum sínum síðastliðinn áratug og haft hana sem einhverskonar leiðarljós í lífinu. Enda af þúsaldarkynslóðinni”, líkt og um þriðjungur þeirra ferðamanna sem heimsækja Ísland í dag.

Eins og flest okkar sem störfum í greininni, finnum við daglega fyrir því að landslag ferðaþjónustunnar er stöðugt á hreyfingu. Nýjar kynslóðir ferðamanna sækja að, væntingar breytast og tæknin þróast á ótrúlegum hraða. Sjálfbærni er orðin að kröfu fremur en valkosti. Við lifum nefnilega á tímum upplifunarhagkerfisins, þar sem ferðamenn kaupa ekki einungis gistingu, afþreyingu eða flugmiða til að ferðast. Þeir kaupa í auknum mæli upplifun, með dýpri merkingu og nánari tengingu en áður. Þetta snýst því ekki aðeins um markaðssetningu, heldur um framkvæmdina sjálfa. Upplifunina!

Og þar kemur hæfnin inn. Ekki sem aukaatriði, heldur sem lykill að því að geta brugðist við breytingum og nýjum kröfum. Hæfni er það sem gerir okkur kleift að lesa í breytingar, aðlagast þeim og jafnvel leiða þær. Hæfni er meira en formleg menntun, hún er samspil þekkingar, reynslu, viðhorfa og dómgreindar. Hún birtist í því hvernig framlínustarfsmaður mætir gesti í dag sem hafði aðrar væntingar í gær. Hún birtist í því hvernig stjórnandi mótar stefnu sem tekur mið af sjálfbærni, stafrænum lausnum og breyttum gildum markhópa. Og hún birtist í því hvernig fyrirtæki byggja upp menningu þar sem fagmennska er lifandi í daglegum störfum en ekki bara orð á blaði.

Hæfni er því ekki föst stærð. Hún þarf að þróast með tímanum. Þess vegna er hlutverk Hæfniseturs ferðaþjónustunnar nú mikilvægara en nokkru sinni fyrr.

Hæfnisetrið starfar á forsendum greinarinnar við að efla hæfni og gæði, í nánu samstarfi við hagsmunaaðila. Það greinir fræðsluþarfir, þróar verkfæri og stuðningsefni, vinnur að innleiðingu lausna og styður við uppbyggingu alþjóðlegs náms með áherslu á sjálfbærni. Markmiðið er því einfalt, að styrkja grunn ferðaþjónustunnar svo greinin geti áfram verið bæði samkeppnishæf og trúverðug í breyttu umhverfi.

Í upplifunarhagkerfinu er hæfni nefnilega samkeppnisforskot.

Eitt hlutverk Hæfnisetursins snýst einmitt um að byggja upp getu greinarinnar til að taka á móti breytingum með fagmennsku, samvinnu og lausnamiðaðri nálgun. Í grein eins og ferðaþjónustunni, þar sem hlutirnir gerast hratt, er hæfni því sömuleiðis viðbragðsgeta. Og kannski getum við gengið svo langt að segja að viðbragðsgeta sé framtíðin. Upplifanir verða nefnilega ekki til af sjálfu sér. Þær verða til í gegnum fólk og samfélög og hæfnina sem það býr yfir.

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar

Z kynslóðin

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar hafa fest sig í sessi sem reglulegur vettvangur fyrir samtal og miðlun um hæfni og faglega þróun í greininni. Viðburðirnir eru haldnir í samstarfi Hæfnisetursins og Samtaka ferðaþjónustunnar, ásamt Markaðsstofum landshlutanna, sem styrkir tengingu við fyrirtæki víðs vegar um landið og styður við að efni og umræðuefni endurspegli ólíkar þarfir innan greinarinnar.

Á árinu voru haldnir þrír Menntamorgnar um ólík málefni þar sem sérfræðingar og fyrirtæki í ferðaþjónustu deildu reynslu, góðum dæmum og ráðum. Jafnframt var stuðningsefni Hæfnisetursins kynnt og bent á leiðir til að nýta það í daglegum rekstri. Fundirnir fóru fram í beinu streymi á Facebook-síðu Hæfnisetursins og upptökur voru aðgengilegar í kjölfarið á YouTube-síðu Hæfnisetursins. Í framhaldi af Menntamorgni í nóvember var einnig unnið Menntaspjall, þar sem farið var nánar í umræðuefnið „Ferðalag með Z kynslóðinni“.

420 manns skráðu sig á 3 Menntamorgna á árinuMenntamorgnar

Sjálfbærniráðstefna á Siglufirði

Dagana 12.–14. mars sótti Hæfnisetrið alþjóðlega ráðstefnu á Siglufirði og Hólum í Hjaltadal um sjálfbæra og nærandi ferðaþjónustu. Viðburðurinn var lokaráðstefna í norræna NorReg-verkefninu sem Ferðaklasinn stýrði, með um 100 þátttakendum frá rúmlega 12 löndum. Fyrirlesarar víðsvegar að héldu fjölbreytt og fróðleg erindi sem vörpuðu ljósi á hugtakið „nærandi ferðaþjónusta“ en það er nálgun sem gengur lengra en hefðbundin sjálfbærni og hefur það að markmiði að auðga og næra samfélagið, menninguna og náttúruna í kringum sig. Niðurstaðan er skýrari heildarsýn á þau verkefni og tækifæri sem móta áframhaldandi vegferð að sjálfbærri og nærandi ferðaþjónustu á Íslandi.

Sjálfbærniráðstefna á Siglufirði

Tilraunaverkefnið Fræðsla til framtíðar

Tilraunaverkefninu Fræðsla til framtíðar lauk á árinu 2025. Verkefnið var unnið í samstarfi við starfsmenntasjóðina Landsmennt, Starfsmenntasjóð verslunar-og skrifstofufólks og Starfsafl og byggði á ráðgjöf og lausnum Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.

Markmið verkefnisins var að styðja við og valdefla stjórnendur lítilla og meðalstórra ferðaþjónustu fyrirtækja í að koma á markvissri og skipulagðri þjálfun og fræðslu fyrir starfsfólk sitt. Sérstök áhersla var lögð á að efla hæfni stjórnenda til að framkvæma fræðslugreiningu innan eigin fyrirtækis, kynna þeim styrkjaleiðir sjóðanna í gegnum Áttin, (Attin.is) og þjálfa þá í notkun verkfæra Hæfnisetursins. Með þessu var jafnframt stefnt að því að styðja við faglega þróun starfsfólks og efla hæfni starfsfólks.

Fyrirhugað upplegg verkefnisins var að ná til allt að 20 fyrirtækja, með 10–50 starfsmenn vítt og breitt um landið. Í því fólst allt að 20 klst. ráðgjöf frá sérfræðingum við innleiðingu starfsþróunarverkefna, svo sem fræðslugreininga, gerð fræðsluáætlana, nýliðaþjálfunar og starfsmannahandbóka. Alls tóku 15 fyrirtæki þátt í verkefninu og komu þau úr mismunandi greinum ferðaþjónustunnar. Niðurstöðurnar sýna að þessi stuðningur skilar sér alla leið - tæplega 90% þátttakenda sögðu verkefnið hafa aukið fagmennsku þeirra og sjálfsöryggi í stjórnendahlutverkinu, auk þess sem skipulag innan fyrirtækjanna varð traustara. Verkefninu er nú lokið, en reynslan af því nýtist beint í næstu skref. Ein helsta niðurstaðan var mikilvægi þess að bjóða upp á aðgengileg, stafræn sniðmát sem gera stjórnendum kleift að framkvæma eigin fræðslugreiningar á einfaldan hátt.

Með stuðningi frá starfsmenntasjóðum er nú unnið að því að fullvinna þessi sniðmát í nánu samstarfi við ólíkar starfsgreinar innan ferðaþjónustunnar. Þau verða innan skamms aðgengileg á stafrænu vinnusvæði Hæfnisetursins á haefni.is. Þessi nýja lausn mun veita stjórnendum smærri og meðalstórra fyrirtækja áframhaldandi stuðning við að efla fagmennsku og þekkingu innan sinna raða.

Mynd úr verkefni
Mynd úr verkefni
Mynd úr verkefni
Vinnufundur UPLIFT

Vinnufundur UPLIFT verkefnis í Vilníus

Í október var Hæfnisetrinu boðið að taka þátt í tveggja daga vinnustofu í Vilníus í Litháen á vegum Evrópuverkefnisins (Erasmus + verkefnisins) UPLIFT. Verkefnið er samstarfsverkefni fimm landa: Litháen, Slóveníu, Írlands og Danmerkur og er leitt af Rannsóknarmiðstöð ferðamála af hálfu Íslands.

UPLIFT (Unlocking the Potential of Immersive Literary and Film Tourism) snýr að nýtingu upplifunartækni; gervigreindar (AI), viðbótarveruleika (AR), og sýndarveruleika (VR) til nýsköpunar í bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu, sérstaklega hjá litlum og meðalstórum ferðaþjónustuaðilum.

Auk fundarhalda heimsóttu þátttakendur sýndarveruleikasýningu í Vilníus og tóku þátt í vinnustofu í notkun þrívíddarmyndatöku. Stafræn tækni ryður sér ört til rúms í íslenskri ferðaþjónustu og verður spennandi að fylgjast með framvindu verkefnisins. Vonandi verður það hvatning til að skapa fjölbreyttari og dýpri menningarupplifanir fyrir ferðafólk á Íslandi.

Ferðalag án hindrana
– samstarfsverkefni

Í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks, þann 3. desember, vann Hæfnisetur ferðaþjónustunnar í samstarfi við Ferðamálastofu og Samtök ferðaþjónustunnar að þættinum „Í stuttu máli“ undir yfirskriftinni „Ferðalag án hindrana“. Í tilefni dagsins var þátturinn birtur og þar var verkefni Ferðamálastofu „Gott aðgengi fyrir alla“ kynnt. Í framhaldinu var boðið upp á spjall þar sem Helen Hannesdóttir, forstöðumaður þróunar- og þjónustusviðs Ferðamálastofu ræddi við Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, formann Sjálfsbjargar, og Ásrúnu Ísleifsdóttur, gæða-, öryggis- og umhverfisstjóra hjá Sky Lagoon, um aðgengi í íslenskri ferðaþjónustu og þau tækifæri sem felast í framþróun á þessu sviði.

Ferðalag án hindrana

Verkefnið undirstrikar að gott aðgengi er ekki aðeins sjálfsögð mannréttindi heldur einnig viðskiptatækifæri og fjárfesting til framtíðar fyrir ferðaþjónustufyrirtæki sem vilja byggja upp ábyrgari og aðgengilegri þjónustu.

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?