Hápunktar ársins
Hápunktar ársins - Janúar til Júní
Hápunktar ársins - Júlí til Desember
Efling náms í ferðaþjónustu

Kortlagning á stöðu mála og greining á áskorunum

Á árinu 2025 var Hæfnisetri ferðaþjónustunnar falið, samkvæmt þjónustusamningi við atvinnuvegaráðuneytið, að veita starfshópi um alþjóðlegt nám í afþreyingartengdri ferðaþjónustu forystu. Verkefnið byggði á aðgerð E.4. „Alþjóðlegt nám í afþreyingartengdri ferðaþjónustu, með áherslu á sjálfbærni“, í aðgerðaáætlun ferðamálastefnu til ársins 2030. Einnig sat fulltrúi frá Hæfnisetrinu í starfshópi E2 um „Eflingu náms í ferðaþjónustu, þvert á skólastig, og aukið aðgengi að námi“.

Fljótlega þróaðist samstarf milli hópanna. Á miðju ári 2025 var ákveðið að þeir skyldu skila sameiginlegri niðurstöðu til atvinnuvegaráðuneytis.

Fjögur áhersluatriði úr vinnu hópa E2 og E4:

  • bulletAð efla og auka aðgengi að námi þvert á skólastig.
  • bulletAð stuðla að auknum tengslum og flæði milli náms á mismunandi þrepum.
  • bulletAð efla fjölmenningarvitund og inngildingu í menntakerfinu.
  • bulletAð byggja upp alþjóðlegt nám í afþreyingartengdri og nærandi ferðaþjónustu.

Skýrslunni var skilað í janúar 2026 og þar koma fram helstu niðurstöður og tillögur um næstu skref sjá hér. Kjarninn í niðurstöðum hópanna er að þróun ferðaþjónustunnar og ferðamálastefna kalli á mun markvissari uppbyggingu menntunar, hæfni og fagþekkingar.

Námsframboð á sviði ferðamála er brotakennt og hefur þróast án heildarsýnar. Mjög takmarkað framboð er af ferðaþjónustutengdu námi á fyrstu þrepum íslenska hæfnirammans um menntun (ISQF). Það er einna helst að finna innan framhaldsfræðslunnar, en innan framhaldsskóla er það vart sýnilegt. Námsframboð á efri þrepum íslenska hæfnirammans um menntun er hins vegar umtalsvert.

Þörf er á framboði á viðurkenndu og hagnýtu starfsnámi í ferðaþjónustu, sem fer fram á vinnustað og í skóla, hefur skýra tilvísun í störf og áherslu á þjónustu. Samhliða því er þörf fyrir þjónustutengt bóknám sem undirstöðu til frekara náms í ferðaþjónustutengdum greinum.

Ferðamálastefna til ársins 2030, sem Alþingi samþykkti sumarið 2024, leggur höfuðáherslu á sjálfbærni og verðmætasköpun fram yfir fjölgun ferðamanna. Til að þessi framtíðarsýn nái fram að ganga þarf markvissa uppbyggingu menntunar og hæfni innan greinarinnar, þannig að ferðaþjónustan haldi áfram að þróast í átt að aukinni sjálfbærni, fagmennsku og gæðum.

Sólheimajökull
Borgarfjörður
Seljalandsfoss
Stafræn færni fyrir framtíðina
Ferðapúlsinn Skífurit

Ferðapúlsinn styður fyrirtæki í að meta stafræna stöðu sína og forgangsraða næstu skrefum á þeirri vegferð.

Ferðapúlsinn

Á árinu 2025 var lögð áhersla á Ferðapúlsinn, sjálfsmatsverkfæri sem styður fyrirtæki í ferðaþjónustu við að greina stöðu sína í stafrænni þróun. Alls nýttu 88 fyrirtæki Ferðapúlsinn á árinu til að sjá stöðu sína, sem veitir dýrmæta innsýn í hvar greinin stendur og hvar tækifærin til framþróunar liggja.

Sterkur grunnur en ónýtt tækifæri

Almennt telja forsvarsmenn fyrirtækjanna sig vel undirbúna fyrir stafræna þróun. Niðurstöðurnar sýna að:

  • bullet

    Gagnaaðgengi er gott: Flest fyrirtæki telja stafræn gögn sín aðgengileg og nýtanleg í viðskiptalegum tilgangi.

  • bullet

    Samskipti eru í forgangi: Mikill vilji og tæknilegur undirbúningur er til staðar þegar kemur að stafrænum samskiptum við viðskiptavini.

Þrátt fyrir þennan góða grunn sýna heildarniðurstöðurnar að íslensk ferðaþjónusta er enn á stigi „nýgræðings“ þegar kemur að stafrænni vegferð. Mörg tækifæri eru enn til staðar til verðmætasköpunar þar sem raunverulega hagnýtingu tækninnar skortir.

Mannauðurinn og vellíðan: Veikasti hlekkurinn?

Sá þáttur sem kemur lakast út í matinu snýr að stafrænni hæfni starfsfólks og starfsumhverfi. Aðeins 35% svarenda telja að stafræn tækni havi verið nýtt markvisst til að bæta vinnuskilyrði, auka framleiðni eða efla vellíðan á vinnustað. Hér liggur skýrt tækifæri til úrbóta, enda er mannauðurinn lykillinn að því að tæknilausnir skili tilætluðum árangri.

Tölfræðin segir sína sögu

Þegar rýnt er í einstaka vaxtarsprota tækninnar, má sjá að margt er enn órannsakað hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum:

Fjárfesting

Fjárfesting
í stafrænni þróun

0%

fyrirtækja
forgangsraða fjármagni
í stafræna vegferð.

Gervigreind

Gervigreind (AI)

0%

telja sig tilbúin til að nýta
gervigreind í rekstri.

Sjálfvirknivæðing

Sjálfvirknivæðing

0%

nýta þjarka (róbóta) eða
sjálfstýrð tæki.

Menntun og þjálfun

Menntun
og þjálfun

0%

formlegar áætlanir um
stafræna þjálfun
starfsfólks eru sjaldgæfar.

Horft fram á veginn

Niðurstöður ársins 2025 sýna að þótt viljinn sé til staðar, skortir skipulagða fjárfestingu og þjálfun til að raungera tækifærin. Til að ferðaþjónustan færist úr því að vera „nýgræðingur“ yfir í að vera leiðandi í stafrænum heimi, þarf að brúa bilið á milli gagnaaðgengis og raunverulegrar hagnýtingar tækninnar í þágu starfsfólks og verðmætasköpunar. Með aukinni þátttöku fyrirtækja má byggja upp betri heildarmynd af stafrænni stöðu íslenskrar ferðaþjónustu, eftir landshlutum og í alþjóðlegum samanburði. Án stöðumælinga er engin stefna. Sameiginlegt átak ferðaþjónustunnar um stafræna stöðu er lykillinn að árangri, og Ferðapúlsinn er tækið sem knýr þá vegferð.

Fjárfest í nýju vefsvæði

Um mitt ár 2025 var tekin ákvörðun um að endurnýja vefsvæðið haefni.is frá grunni. Eldri vefur annaði ekki lengur þeirri miklu aukningu sem orðið hefur á stuðningsefni og verkfærum Hæfniseturs ferðaþjónustunnar. Vefurinn er ein helsta boðleið Hæfnisetursins til að ná til hins breiða markhóps í íslenskri ferðaþjónustu og því er lykilatriði að tæknilegir innviðir styðji með afgerandi hætti við hlutverk og framtíðarsýn starfseminnar.

Hraðar tækniframfarir kölluðu á nýja lausn sem mætir ströngustu kröfum um öryggi, hraða og snjalla miðlun. Nýi vefurinn er hannaður sem snjallt gagnasafn þar sem gervigreind er nýtt til að sækja og miðla upplýsingum til notenda af meiri nákvæmni en áður.

Þessi tæknibreyting skilar sér fyrst og fremst í bættri notendaupplifun. Lögð er rík áhersla á háþróaða leitartækni og nýja upplýsingahönnun svo starfsfólk í ferðaþjónustu geti sótt viðeigandi verkfæri og gögn hratt og örugglega. Markmiðið er að vefurinn verði virkt verkfæri sem lagar sig að þörfum greinarinnar í rauntíma. Samhliða tæknilegu uppfærslunni er unnið að heildstæðri rýni á öllu efni til að tryggja að sú þekking sem miðlað er, sé ávallt uppfærð og viðeigandi fyrir fjölbreytta starfsemi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.

Nýr vefur 1Nýr vefur 2

Stafrænar lausnir í þjónustu greinarinnar

Stafrænt vinnusvæði Hæfnisetursins á hæfni.is hefur fest sig í sessi sem aðgengilegt stuðningsumhverfi fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Á árinu hélt áfram þróun og miðlun gagnvirkra sniðmáta á svæðinu sem styðja stjórnendur í að efla innviði og mannauð með aðgengilegum og lausnamiðuðum hætti. Sniðmátin hafa verið þróuð í samstarfi við sérfræðinga og hagaðila greinarinnar með þarfir ferðaþjónustunnar að leiðarljósi.

Nú þegar eru um 180 notendur skráðir á stafræna vinnusvæðið. Með notkun sniðmátanna geta fyrirtæki stuðlað að gagnsæju verklagi, skýrri upplýsingagjöf og samræmdum væntingum starfsfólks, sem styrkir fagleg vinnubrögð, styður við aukna starfsánægju og velferð. Vinnusvæðið er hannað þannig að stjórnendur geti auðveldlega aðlagað sniðmát að eigin starfsemi, unnið í samvinnu við samstarfsfólk og miðlað niðurstöðum áfram, hvort sem er innanhúss eða á vef. Allt efni er dagsett, auðvelt í uppfærslu og er aðgengilegt bæði á íslensku og ensku.

Á vinnusvæðinu eru í boði sniðmát á borð við fræðslukannanir, gátlista fyrir móttöku nýs starfsfólks, gloppugreiningar, stefnumótun á sviði mannauðs og sjálfbærni, starfsánægjukannanir og starfsmannahandbók.

Keyboard
0

notendur á stafrænu
vinnusvæði
Hæfnisetursins
í lok ársins.

Woman at computer

Vinnustofur – ný leið til miðlunar og notkunar stafrænna lausna

Stafræna vinnusvæðið okkar stækkar ört og því fylgir sú ábyrgð að tryggja að fyrirtækin þekki þessar lausnir og kunni að nýta þær til fullnustu. Til viðbótar við hefðbundna markaðssetningu var á árinu 2025 tekin upp sú nýbreytni að bjóða upp á vinnustofur þar sem sniðmát eru kynnt og þátttakendum í kjölfarið gefið tækifæri til að hefja vinnu við eigin sniðmát undir leiðsögn.

Sex vel sóttar vinnustofur um gerð starfsmannahandbóka fóru fram bæði í staðfundum og á Teams, á íslensku og ensku. Samhliða þessu var lögð sérstök áhersla á miðlun stuðningsefnis sem snýr að auknum sýnileika íslensku og íslenskunotkun á fjöltyngdum vinnustöðum ferðaþjónustunnar. Tvær vinnustofur voru haldnar á Teams með fjölda þátttakenda þar sem meðal annars var farið yfir sniðmát að málstefnu. Jafnframt var unnin markaðsherferð um stuðningsefni og íslenskunámskeið sem má finna á síðunni hæfni.is og greinin „Getur ferðaþjónusta og íslenskan þrifist saman?“ birt á Vísi.

Góð aðsókn staðfestir þörfina fyrir þessa nálgun og sýnir að vinnustofur eru áhrifarík leið til að tengja lausnir Hæfnisetursins við raunverulegar þarfir fyrirtækja. Vinnustofurnar eru því að festast í sessi sem fastur liður í miðlun og innleiðingu.

0

manns sóttu
vinnustofur
Hæfnisetursins á
árinu.

Traustari undirstöður, sterkari ferðaþjónusta

Jóhannes Þór Skúlason

Jóhannes Þór Skúlason,framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar og formaður
stýrihóps Hæfniseturs ferðaþjónustunnar

Áframhaldandi uppbygging öflugrar ferðaþjónustu til framtíðar byggir fyrst og fremst á hæfni fólksins sem starfar í greininni, og getu fyrirtækjanna sem það tilheyrir til að þróast, bregðast við breytingum og viðhalda gæðum í sífellt meira krefjandi rekstrarumhverfi. Í því samhengi gegnir Hæfnisetur ferðaþjónustunnar afar mikilvægu hlutverki.

Hlutverk Hæfnisetursins hefur frá upphafi verið að efla hæfni, fagmennsku og gæði í atvinnugreininni með hagnýtum lausnum sem geta nýst fyrirtækjum af öllum stærðum og um land allt. Það skiptir ekki síst miklu máli fyrir lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki sem standa frammi fyrir miklum kröfum og áskorunum, en hafa takmarkað svigrúm til að byggja upp sérhæfða þekkingu og þróun innanhúss. Þar getur markviss stuðningur, aðgengileg verkfæri og skýr leiðsögn skipt sköpum um uppbyggingu og framtíð fyrirtækisins. Áhersla Hæfnisetursins á undangreind málefni/hagsmunamál hefur skilað góðum árangri og stefnir ótrauð á að halda því áfram næstu ár.

Ein helsta hindrunin í uppbyggingu hæfni innan lítilla fyrirtækja getur verið að vita hvernig á að meta stöðuna og þar með þörfina fyrir þekkingaröflun og þjálfun innan fyrirtækisins. Þar er þjónusta Hæfnisetursins öflug og mikilvæg stoð.

Í því sambandi má nefna að meðal verkefna, sem horft er til framtíðar með má nefna Ferðapúlsinn sem er verkfæri um stafræna hæfni sem gefur fyrirtækjum mikilvæga innsýn í eigin stöðu og bendir rekstraraðilum á raunhæfar leiðir til stafrænna framfara. Þörfin fyrir hæfniuppbyggingu, aukin gæði og sterkari innviði ferðaþjónustufyrirtækja mun ekki minnka á komandi árum. Þvert á móti mun Hæfnisetrið áfram gegna lykilhlutverki í því að efla fyrirtæki við að styrkja rekstur sinn, auka samkeppnishæfni og byggja upp ferðaþjónustu sem stenst kröfur framtíðarinnar.

Seljalandsfoss
Sólheimajökull
Þingvellir

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?