Helstu áherslur ársins 2026

Árið 2026 verður áfram lögð áhersla á að efla þjónustu og lausnir Hæfniseturs ferðaþjónustunnar í samræmi við núgildandi samning við atvinnuvegaráðuneytið og aðgerðaáætlun stjórnvalda til 2030. Megináhersla verður á náið samstarf við greinina, markvissa miðlun og þróun stafrænna lausna sem styðja fyrirtæki í sjálfbærni, öryggi, gæðum og faglegri hæfniuppbyggingu.

Samstarf og samtal

bullet

Halda áfram öflugu samstarfi við helstu hagsmunaaðila, m.a. Markaðsstofur landshlutanna, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofu og Íslenska ferðaklasann.

bullet

Tengja verkefni Hæfnisetursins enn skýrar við svæðisbundin stoðkerfi og efla samtal við fyrirtæki um þarfir þeirra og forgangsröðun.

Miðlun og innleiðing

bullet

Auka sýnileika og aðgengi að lausnum Hæfnisetursins með fyrirtækjaheimsóknum, markvissum herferðum og efnissköpun á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.

bullet

Styðja innleiðingu með reglulegri handleiðslu og vinnustofum til að koma lausnum í notkun.

Stafræn þjónusta og notendaupplifun

bullet

Áframhaldandi uppbygging á vefnum hæfni.is með áherslu á betri notendaupplifun, skýrara flæði og aðgengilega leiðsögn að efni og verkfærum með gervigreindarspjallmenni.

bullet

Halda áfram þróun og uppfærslu notendavænna sniðmáta á stafrænu vinnusvæði Hæfnisetursins.

bullet

Nýta Ferðapúlsinn sem leið til stuðnings við fyrirtæki á stafrænni vegferð.

bullet

Þróun stafrænna fræðslugreininga fyrir fyrirtæki til að greina fræðsluþarfir og forgangsraða aðgerðum.

Stuðningur við fyrirtæki

bullet

Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur, einkum í litlum og meðalstórum fyrirtækjum, með áherslu á breyttar kröfur, stafræna þróun og fjölbreyttan mannauð.

bullet

Styðja fyrirtæki áfram í átt að nærandi ferðaþjónustu í takti við aðgerðaáætlun til 2030, m.a. með áherslu á sjálfbærar lausnir og menningartengda ferðaþjónustu.

bullet

Efla öryggismenningu í ferðaþjónustu með markvissu efni, leiðsögn og miðlun sem styður við öryggi í daglegum rekstri.

Hæfnigreiningar og námsuppbygging

bullet

Vinna áfram að hæfnigreiningum starfa og innleiðingu Fagbréfa atvinnulífsins í ferðaþjónustu og styrkja tengingu við fræðsluaðila um uppbyggingu náms.

Lokamynd Ársskýrslu

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?