Fræðsluefni

Fræðsluefni

Hér getur þú fundið fjölbreytt úrval verkfæra fyrir stjórnendur og starfsfólk til að efla hæfni og gæði.

Filters

Ferðapúlsinn

Þekktu þína stafrænu stöðu

Ferðapúlsinn er verkfæri fyrir ferðaþjónustuaðila þar sem þeir geta með einföldum hætti fengið mat á stöðu fyrirtækisins í stafrænni hæfni. Hæfnisetur ferðaþjónustunnar þróaði Ferðapúlsinn í samvinnu við Ferðamálastofu, Íslenska ferðaklasann, Markaðsstofur landshlutanna og SAF.

Rekstur og tækniSniðmát, handbækur og verkfæri

Hæfni

Málstefna

Byrjaðu strax - með tilbúnu sniðmáti

Skýr málstefna er mikilvægur grunnur fyrir góð samskipti, fagmennsku og gæði í ferðaþjónustu. Með sameiginlegum viðmiðum um tungumálanotkun geta fyrirtæki auðveldað samstarf starfsfólks og stutt við notkun íslensku í daglegu starfi. Hér má finna sniðmát að málstefnu, leiðbeiningar um hvernig fyrirtæki geta mótað eigin stefnu og hagnýtar leiðir til að efla notkun íslensku í daglegu starfi.

ÍslenskaÍslensk tungaLand og menningTungumálÞjálfun og hæfniSamskipti og mannauðsmálSniðmát, handbækur og verkfæri

Hæfni

Gerðu þína eigin starfsmannahandbók

Byrjaðu strax – með tilbúnu sniðmáti

Starfsmannahandbók er lykillinn að fagmennsku, skýrleika og góðri starfsmenningu. Hún tryggir að allir starfsmenn viti hverjar reglurnar eru, hvaða gildi fyrirtækið stendur fyrir og hvernig við vinnum saman til að skapa frábæra upplifun fyrir gesti og starfsfólk.

Mannauður og starfsmannahaldSniðmát, handbækur og verkfæriÞjálfun og hæfni

Hæfni

Sjálfbærnistefna

Afhverju að innleiða sjálfbærnistefnu?

Ferðamenn í dag eru sífellt meðvitaðri um umhverfisáhrif ferða sinna og margir gera kröfur um skýrar stefnur og vottanir. Fyrirtæki sem taka sjálfbærni alvarlega verða því ekki aðeins hluti af lausninni, heldur líka eftirsóttur kostur fyrir gesti. Að innleiða sjálfbærni þarf ekki að vera flókið ferli. Þetta snýst um að taka meðvituð skref í átt að betri nýtingu, minni sóun og virðingu fyrir samfélaginu okkar. Hér hjálpum við þér að móta stefnu sem hentar þínum rekstri,þannig verður þú hluti af lausninni og skapar eftirsóknarverða upplifun fyrir meðvitaða gesti.

Gæði og sjálfbærniSniðmát, handbækur og verkfæriMannauður og starfsmannahald

Hæfni

Nýtt stafrænt vinnusvæði

Einfaldar daglegt starf í ferðaþjónustu

Við bjóðum öllum aðilum innan ferðaþjónustunnar að nýta sér þetta frábæra svæði algerlega frítt. Hér getur þú fengið aðgang að gagnvirku svæði sem inniheldur fjölda sniðmáta sem þú getur auðveldlega aðlagað að þínum rekstri. Hvort sem þú vilt birta efnið á vefnum þínum eða öðrum vettvangi, þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!

Mannauður og starfsmannahaldGæði og sjálfbærniRekstur og tækniSniðmát, handbækur og verkfæri

Hæfni

Fagorðalistar ferðaþjónustunnar

Hjálpa starfsfólki og gestum að skilja hvert annað

Um er að ræða orðasafn algengra orða og frasa sem notaðir eru í ferðaþjónustunni og geta auðveldað samskipti á vinnustað. Fagorðalistar ferðaþjónustunnar auðvelda samskipti, stuðla að betri þjónustu og hjálpa starfsfólki og gestum að skilja hvert annað.

Mannauður og starfsmannahaldSniðmát, handbækur og verkfæriÞjálfun og hæfni

Hæfni

Goodtoknow.is

Þekking fyrir framlínu ferðaþjónustunnar

GoodToKnow.is er upplýsinga- og fræðsluvefur fyrir framlínustarfsfólk í ferðaþjónustu sem auðveldar framlínustarfsfólki að veita ferðamönnum góðar og réttar upplýsingar. Hann nýtist sérstaklega þeim, sem hafa ekki áður starfað í ferðaþjónustu. Unnið í samstarfi við Ferðamálastofu og styrkt af Landsmennt, Starfsafli og Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks.

Sniðmát, handbækur og verkfæriÞjálfun og hæfniLeiðsögn

Hæfni

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?