Markviss fræðsla byrjar á því að þekkja þörfina

Veistu hvar þörfin fyrir fræðslu og þjálfun liggur hjá þínu starfsfólki?

Á stafræna vinnusvæðinu finnur þú tilbúnar kannanir fyrir ólík störf innan ferðaþjónustunnar. Þú getur notað þær eins og þær eru eða aðlagað þær að þínu fyrirtæki.

Búa til fræðslukönnunInni á stafræna vinnusvæðinu

Opna

Tilbúnar kannanir sem þú aðlagar að þínum þörfum

Í boði eru 11 fræðslukannanir fyrir ólík starfssvið ferðaþjónustunnar, auk starfsánægjukönnunar. Kannanirnar eru á íslensku og ensku og taka meðal annars til verklags og samstarfs, þjónustu og samskipta, fagþekkingar, öryggis og stafrænnar hæfni.

Hægt er að velja tilbúið sniðmát, aðlaga spurningar að starfseminni og senda könnunina síðan á starfsfólk.

1

Leiðbeiningar um gerð fræðslukannana

2

Uppbygging kannananna

3

Ávinningur ferðaþjónustufyrirtækja

4

Dæmi um tilbúnar kannanir

1.Leiðbeiningar um gerð fræðslukannana

Kynning - Fræðslukannanir (5).png

Fræðslukannanirnar voru þróaðar með aðkomu fyrirtækja úr ólíkum greinum ferðaþjónustunnar með það að markmiði að þær endurspegli raunveruleg störf og fræðsluþarfir starfsfólks. Verkefnið var unnið með þróunarstyrk frá starfsmenntasjóðunum Starfsafli, Landsmennt og Starfsmenntasjóði verslunar og skrifstofufólks. 

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?