
Fagorðalistar ferðaþjónustunnar
Í samstarfi við hagaðila þróaði Hæfnisetur ferðaþjónustunnar sérhæfða fagorðalista sem nýtast starfsfólki í ferðaþjónustu í daglegu starfi. Í orðalistunum má finna algeng orð og orðatiltæki sem notuð eru í greininni og geta þeir stuðlað að betri samskiptum á vinnustað sem og við ferðafólk sem hefur áhuga á að heyra og kynnast íslenskunni. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum og hægt er að hlusta á framburð orðanna á íslensku.
1
Hvað og af hverju?
2
Fyrir hverja?
3
Hvernig virkar þetta?
4
Skref fyrir skref
1
Hvað og af hverju?
2
Fyrir hverja?
3
Hvernig virkar þetta?
4
Skref fyrir skref
1.Hvað og af hverju?

Fagorðalisti ferðaþjónustunnar
Fagorðalistar ferðaþjónustunnar eru fyrir móttöku, þrif og umgengni, eldhús, skoðunarferðir og akstur, afþreyingu og þjónustu í sal. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum. Hlusta má á framburð orðanna á íslensku.

Veggspjöld
Til að efla góða samvinnu og sameiginlegan skilning starfsfólks í ferðaþjónustu var tekinn saman listi yfir algeng orð sem notuð eru á fimm mismunandi sviðum og eru á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.

Fiskabúrið
Fiskabúrið geymir safn heita yfir matfiska sem notaðir eru í réttum veitingastaða með myndum eftir Jón Baldur Hlíðberg. Fiskabúrið er á fjórum tungumálum. Hlusta má á framburð orðanna á íslensku.
Fagorðalisti ferðaþjónustunnarMyndband um notkun fagorðalistans
Skoða á YouTube