Hvað upplifa gestir sem gæði í ferðaþjónustu?Hvað skiptir þá mestu máli þegar kemur að upplýsingum, væntingum og þjónustu? 

Fáðu innsýn í þarfir gesta í dag og lærðu hvernig litlar breytingar í verklagi, menningu og þjálfun geta skilað stórum árangri.

Á næsta Menntamorgni Ferðaþjónustunnar setjum við gestinn í sviðsljósið og skoðum hvernig upplifun hans verður til, frá fyrstu samskiptum og skýrum upplýsingum til þjónustu sem lætur hann finna að hann skipti máli.
Við fáum til okkar framsækna fyrirlesara sem vinna daglega með gestum og þjónustuteymum. Þau deila lifandi dæmum, praktískum ráðum og þeim litlu hlutum sem hafa stór áhrif á hvernig gestir upplifa ferðalagið sitt.
Þú færð hugmyndir sem styrkja þjónustuna þína strax: hvernig verklag getur stutt betri samskipti, hvernig menningin í teyminu skilar sér beint til gesta og hvernig þjálfun hjálpar starfsfólki að láta hvern og einn gest finna að hann sé í alvöru í aðalhlutverki.

Viðburðurinn er öllum opinn í streymi

 Meðal gesta eru:

  • Júlíus Freyr Theódórsson, leiðsögumaður
    • Skrokkur í sæti?
  • Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania
    • Mikilvægi þjónustuveitingar: frá sjúklingi til tæknistjóra
  • Ólína Laxdal, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
    • Spegill, Spegill: hvernig endurspeglum við þarfir gesta okkar í gæðaþjónustu?

 

Fundarstjóri er Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðukona Áfangastaðarins Reykjaness

Hvenær? Þriðjudaginn 17. febrúar kl. 11:00–12:00

Hvar? Í beinu streymi á Facebook – öllum opið og aðgengilegt

Skráðu þig og taktu þátt í samtalinu um hvað skiptir ferðamanninn í alvöru máli

Hafðu samband