
Líflegar umræður um öryggismál á Menntamorgni á Akureyri
Menntamorgun ferðaþjónustunnar var haldinn á Akureyri þann 9. apríl og tóku um 80 gestir þátt, ýmist á staðnum eða í streymi. Fundurinn beindist að öryggismenningu í greininni, reynslusögum, verkferlum og framtíðarsýn, með fyrirlesurum og viðmælendum víðsvegar úr greininni og utan hennar.
Áætlanir, eftirlit og sterk öryggismenning lykilatriði
Gauti Þór Grétarsson öryggisstjóri Samherja, gaf áhugaverða innsýn í hvernig önnur stór atvinnugrein hefur byggt upp öfluga öryggismenningu með samstilltu átaki, kerfisbundinni atvikaskráningu og markvissri þjálfun.
Inga Björk Svavarsdóttir sölustjóri vetrarferða hjá Saga Travel deildi reynslu sinni af því að skipuleggja plan A,B og C fyrir gesti í vetrarferðalögum og hve mikilvægt þjálfað starfsfólk, sveigjanleiki og væntingastjórnun er þegar kemur að öryggi gesta og starfsfólks.
Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur hjá Ferðamálastofu, kynnti langþráð atvikaskráningarkerfi fyrir ferðaþjónustuna sem er væntanlegt í loftið í sumarbyrjun. Kerfið mun ekki aðeins nýtast fyrirtækjum til áhættugreiningar og viðbragðsáætlana heldur einnig sem grunnur að forvörnum og stefnumótun fyrir greinina alla.
Guðmundur Örn Magnússon skíðagæslufulltrúi í Hlíðarfjalli, sagði frá krefjandi verkefnum á skíðasvæðinu þar sem þúsundir innlendra sem erlendra gesta koma saman á góðum dögum og því nauðsynlegt að sinna þjálfun og öryggiseftirliti á markvissan hátt.
Loks kynnti Sólveig Nikulásdóttir hjá Hæfnisetrinu, helstu niðurstöður viðhorfskönnunar um öryggismál innan ferðaþjónustunnar sem lögð var fyrir í aðdraganda fundarins og er sú fyrsta sinnar tegundar í greininni. Hún varpar ljósi á þörf fyrir skýrari reglur, aukna þjálfun og sameiginlegt verklag. Gestir fundarins lýstu ánægju með framtakið og von er til að slíkt stöðumat haldi áfram á slíkri stöðutöku. Nánar um niðurstöður má lesa hér hæfni.is.
Samtal, samvinna og skýr reglurammi í framtíðarsýn
Líflegar pallborðsumræður beindust að stöðu öryggismála í dag, framtíðarsýn og leiðum til að ná henni. Niðurstaðan var að skýr reglurammi, samtal og samvinna þvert á fyrirtæki og hagaðila eru lykilatriði til að efla öryggismenningu í greininni enn frekar. Viðmælendur voru einnig sammála um að sameiginlegt markmið allra í ferðaþjónustu ætti að vera að tryggja að allir gestir, á hvaða vegum sem þeir eru, komist heilir heim.
Vegna bilunar í nettengingu voru hnökrar í hljóði á útsendingu og ekki tókst að streyma né taka upp hluta fundarins. Upptaka verður því ekki í boði að þessu sinni nema fyrir pallborðshluta fundarins.




