Hvernig skipuleggur Z kynslóðin ferðalög sín? Hvað hefur áhrif á ákvörðunartöku hennar og hvaða væntingar hefur hún til upplifunar og þjónustu? Þessum spurningum verður svarað á næsta Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina „Ferðalag með Z kynslóðinni“ og fer fram miðvikudaginn 19. nóvember kl. 11:00–12:00 í beinu streymi á Facebook.
Á fundinum verður sjónum beint að ferðavenjum Y og Z kynslóðarinnar – allt frá fyrstu hugmynd á TikTok til síðustu stjörnugjafar á Google. Rætt verður um hvernig samfélagsmiðlar og gervigreind móta hegðun ferðamanna, og hvernig ungt fólk setur ný viðmið um sjálfbærni, upplifun og einstaklingsmiðaða þjónustu. Fyrirtæki í ferðaþjónustu fá innsýn í hvernig þau geta brugðist við þessum væntingum með snjöllum lausnum og nýjum nálgunum.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna, er öllum opinn og aðgengilegur í streymi.
Dagskrá fundar:
„Að grípa athygli Gen Z á samfélagsmiðlum“ Cathrine Frederiksen, sérfræðingur í efnisgerð hjá Digido
„Er stafræna heimilisfangið í lagi?“ Rögnvaldur Már Helgason,verkefnastjóri útgáfu og almannatengsla hjá Markaðsstofu Norðurlands
„I just don’t try that hard“ Holly Keyser, eigandi Skool Beans Café
„Hvað skiptir kynslóðirnar máli í ferðaupplifun og þjónustu?“ Anna Steinsen eigandi og þjálfari hjá Kvan
Fundarstjóri er Sölvi Guðmundsson, teymisstjóri markaða og menningar hjá Vestfjarðastofu
Skráning hér: https://haefni.is/ferdalag-med-z-kynslodinni-skraning/

