Eitt stærsta umhverfismál í ferðaþjónustu eru ferðalög og flutningar. Bensín og díselolía eru óendurnýjanlegar auðlindir og við brennslu þeirra losna að auki gróðurhúsalofttegundir. Til að ferðast í og úr vinnu á vistvænan hátt er t.d. hægt að
- ferðast með strætó
- hjóla í vinnuna
- fara gangandi
- vera í samfloti við samstarfsfólk
- nýta upplýsingatækni til að fækka ferðum á fundi
Á kolvidur.is getur þú reiknað út kolefnisfótsporið þitt.