mánudagur, apríl 14, 2025

Stafræn stemning á Norðurlandi

Hæfni
header image

 

Það var mikill áhugi og góður andi á fundum um stafræna markaðssetningu og gervigreind sem haldnir voru í síðustu viku á Húsavík og Sauðarkróki í boði Hæfnisetursins, SAF og Markaðsstofu Norðurlands.

Hátt í 80 ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi tóku þátt og sérfræðingar miðluðu þekkingu sinni og gáfu hagnýt ráð um helstu skrefin í innleiðingu stafrænnar tækni í ferðaþjónustuna, allt frá stöðutöku með Ferðapúlsinum að hagnýtingu gervigreindar í dagleg störf.

1IMG_5395-1152x1536.jpg
1IMG_5373-1-1536x1152.jpg
1IMG_5377-1152x1536.jpg

 

 

Áskoranirnar eru ótvíræðar en tækifærin eru langtum meiri og er von okkar að íslensk ferðaþjónusta tileinki sér nýjustu tæknilausnir hratt og örugglega og nái þannig mikilvægu samkeppnisforskoti með því að höfða til Z og Alpha kynslóðar ferðamanna sem eru nú þegar orðin yfir 50% ferðamanna til Íslands.

Vaxtartækifærin í ferðaþjónustu á Norðurlandi eru fjölmörg með áframhaldandi þróun áfangastaða og nýsköpun. Einnig eru tækifæri tengd alþjóðaflugsamgöngum, samvinnu ferðaþjónustuaðila sín á milli og ekki síst nýtingu tæknilausna til sjálfvirknivæðingar ýmissa þátta starfseminnar. Það skapar rými fyrir persónulega þjónustu og samskipti sem er svo dýrmætt í ferðaþjónustunni.

1IMG_5422-1536x1177.jpg
1IMG_5403-1536x1088.jpg
1IMG_5407-1152x1536.jpg

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?