fimmtudagur, október 17, 2024

Menntamorgunn 23.október Hverjir koma til Íslands og hvernig náum við til þeirra?

Hæfni
header image

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofur landshlutanna bjóða til Menntamorguns ferðaþjónustunnar miðvikudaginn 23.október frá 11:00-11:45. Fundurinn verður í beinu streymi á Facebook.

Á fundinum verður rætt um hvaðan okkar erlendu gestir eru að koma og hvernig er best að ná til þeirra með markvissri markaðssetningu.

Góðir gestir flytja erindi:

Hverjir eru að koma til Íslands

Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssviðs Íslandsstofu.

Gagnadrifin markaðssetning: Hvað skiptir raunverulega máli?

Andreas Örn Aðalsteinsson, yfirmaður stafrænu deildar Sahara

Uppbygging vörumerkja á samfélagsmiðlum

Birgir Már Daníelsson, markaðsstjóri hjá Hvammsvík  

Fundarstjóri, Margrét Björk Björnsdóttir, fagstjóri Áfangastaða- og Markaðsstofu Vesturlands

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?