fimmtudagur, mars 7, 2024

Íslenskukennslu appið Bara tala innleiðir fagorðalista ferðaþjónustunnar

Hæfni
header image

Samtal hófst milli framkvæmdastjóra Bara tala og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar eftir að fyrirtækið hlaut viðurkenninguna sem Menntasproti ársins. Íslenskukennslu appið Bara tala byggir á gervigreind og máltækni og veitir góðan stuðning við starfsfólk í ferðaþjónustu sem eru að taka fyrstu skrefin í að læra íslensku.

Sammælst var um mikilvægi þess að stuðla að aukinni notkun íslensku í ferðaþjónustu. Bara tala hefur nú innleitt Fagorðalista ferðaþjónustunnar sem þróaðir voru af Hæfnisetrinu í samvinnu við starfsfólk í ferðaþjónustu og hagsmunaaðila ferðaþjónustunnar. Fagorðalistarnir og veggspjöldin verða áfram aðgengileg öllum hér á hæfni.is.

Starfstengt íslenskunám fyrir ferðaþjónustufyrirtæki

Nýlega innleiddu Berjaya Hotels og Center Hotels lausnina. Hótelin, í samstarfi við Bara tala, þróa sérsniðið starfstengt íslenskunám og verður efnið síðan aðgengilegt fyrir önnur fyrirtæki á Íslandi sem fjárfesta í lausninni. Þetta er mikilvægt skref til að erlent starfsfólk í ferðaþjónustu geta tileinkað sér orðaforða sem er viðeigandi í þeirra starfi.

Fv. Ólína Laxdal (Hæfnisetur ferðaþjónustunnar), Eir Arnbjarnardóttir (Center Hotels), Jón Gunnar Þórðarson (Bara tala) og Bryndís Skarphéðinsdóttir (Hæfnisetur ferðaþjónustunnar). Myndir: Birgir Ísleifur Gunnarsson.

Um Bara tala

Í forritinu er áhersla er lögð á talmál og notendum gefst tækifæri til að læra og æfa sig í framsögn á íslenskri tungu. Starfsfólk talar við appið og það gefur endurgjöf, áhersla er á samtöl og tungumálið kennt í gegnum leik með myndum og hljóðum. Bara tala getur verið öflug viðbót við íslenskunámskeið og tungumálastuðning á vinnustað.

 


Á myndinni efst í frétt skrifa Eir Arnbjarnardóttir mannauðsstjóri hjá Center Hotels og Jón Gunnar Þórðarson framkvæmdastjóri Bara tala undir samstarfssamning. Sjá nánari fréttaumfjöllun á mbl.is.

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?