fimmtudagur, ágúst 22, 2024

Bara tala – verkfæri sem styður við íslenskunám

Hæfni
header image

Appið Bara tala hefur vakið mikla athygli og byggir það á gervigreind og íslenskri máltækni. Samtal hófst milli Bara tala og Hæfnisetursins fyrr á árinu þegar Bara tala innleiddi fagorðalista ferðaþjónustunnar sem þróaðir voru á sínum tíma í samvinnu við starfsfólk í ferðaþjónustu og hagsmunaaðila ferðaþjónustunnar.

Bryndís Skarphéðinsdóttir hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar ræddi við Jón Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóra Bara tala, um upphafið, árangurssögur, samstarfsmöguleika og framtíðarsýn.

Hvetjum við áhugasama að lesa viðtalið í heild sinni í veftímaritinu um fullorðinsfræðslu, Gátt.

Efnið tengist gatt.frae.is, sem fær IP-tölu þína og getur notað vafrakökur. Þú getur haldið áfram að skoða vefinn án þess að hlaða því.

Um ytri veitendur
PersónuverndVafrakökur