fimmtudagur, maí 23, 2024

Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar fyrir árið 2023 birt

Hæfni
header image

Í ársskýrslunni gefst gott yfirlit yfir verkefni Hæfnisetursins og árangurinn af starfinu. Árið einkenndist af samtali og samvinnu við fjölmarga hagsmunaaðila innan ferðaþjónustunnar víðsvegar um landið.

Meðal verkefna og afurða á árinu voru:

  • Heimsóknir til fyrirtækja og viðburðir fyrir ferðaþjónustufyrirtæki
  • Námslína í ferðaþjónustu
  • Þátttaka í starfshópi um aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030
  • Undirbúningur og fjármögnun fyrir verkefnið Fræðsla til framtíðar
  • Stuðningsefni um forvarnir og viðbrögð gegn áreitni og ofbeldi
     

Ferðamálastjóri, Arnar Már Ólafsson, nefnir í ávarpi sínu að Hæfnisetrið hafi aukið veg og virðingu fyrir störfum í ferðaþjónustu og segir:

”Setrinu hefur tekist að hrinda í framkvæmd átaki sem gagnast fyrirtækjum stórum sem smáum, með fræðslu og þjálfun sem auðgar starfsánægju og stolt samkvæmt könnunum”.

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?