Fræðsluefni

Fræðsluefni

Hér getur þú fundið fjölbreytt úrval verkfæra fyrir stjórnendur og starfsfólk til að efla hæfni og gæði.

Síur

Fræðslukannanir - NÝTT

Tilbúnar kannanir sem þú aðlagar að þínum þörfum

Stafrænar fræðslukannanir auðvelda fyrirtækjum að greina fræðsluþarfir starfsfólks og forgangsraða fræðslu þar sem hennar er mest þörf. Á stafræna vinnusvæðinu finnur þú tilbúnar kannanir fyrir ólík störf innan ferðaþjónustunnar. Þú getur notað þær eins og þær eru eða aðlagað þær að þínu fyrirtæki.

FríttÞjálfun og hæfniMannauður og starfsmannahaldSamskipti og mannauðsmálSniðmát, handbækur og verkfæri

Hæfni

Málstefna

Byrjaðu strax - með tilbúnu sniðmáti

Skýr málstefna er mikilvægur grunnur fyrir góð samskipti, fagmennsku og gæði í ferðaþjónustu. Með sameiginlegum viðmiðum um tungumálanotkun geta fyrirtæki auðveldað samstarf starfsfólks og stutt við notkun íslensku í daglegu starfi. Hér má finna sniðmát að málstefnu, leiðbeiningar um hvernig fyrirtæki geta mótað eigin stefnu og hagnýtar leiðir til að efla notkun íslensku í daglegu starfi.

ÍslenskaÍslensk tungaLand og menningÞjálfun og hæfniSamskipti og mannauðsmálSniðmát, handbækur og verkfæri

Hæfni

Móttaka nýliða og starfsþjálfun

Komdu nýliðum hratt og örugglega af stað

Öflug nýliðaþjálfun bætir þjónustu, dregur úr starfsmannaveltu og eykur þar með arðsemi og starfsánægju. Með stuðningsefni, gátlistum og góðri starfsmannahandbók getur þú tryggt að nýtt starfsfólk fái markvissa og ítarlega þjálfun – strax frá fyrsta degi.

StjórnunMóttaka nýliða og starfsþjálfunSamskipti og mannauðsmálRáðningarferli erlends starfsfólksMannauður og starfsmannahald

Hæfni

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?