Menntamorgunn - Gervigreindin vinnur á meðan þú drekkur kaffið

Streymi
Fjarfundur
Hæfnisetur Ferðaþjónustunnar
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar · 1. desember kl. 11:00–12:00 · á Zoom

Á næsta Menntamorgni sýnum við í verki hvernig gervigreind getur létt á daglegum rekstri í ferðaþjónustu. Þetta er hagnýtur fundur með sýnikennslu, og þú getur fylgst með hvar sem þú ert.

Gervigreindin sjálf er líka á mælendaskrá. Í upphafi fundar leggur Jóhannes Þór Skúlason fyrir hana verkefni. Hún vinnur það á meðan aðrir fyrirlesarar tala og í lokin sjáum við afraksturinn.

Dagskrá

  • Fundarstjóri: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF og formaður stýrihóps Hæfnisetursins
  • Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Hótel Breiðdalsvík: hvernig hótelið nýtir gervigreind í rekstrinum
  • Valur Heiðar Sævarsson, stofnandi Your Friend in Reykjavík: frá fundabókunum á ferðasýningum til eigin rekstrartóla, allt með gervigreind
  • Hæfnisetur ferðaþjónustunnar: Ferðapúlsinn og hagnýt ráð um gervigreind

Fundurinn er fyrir eigendur, stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu, hvort sem þú rekur lítið gistiheimili eða stærra fyrirtæki. Engin tækniþekking er nauðsynleg.

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna.

Skráðu þig hér að neðan👇

PersónuverndVafrakökur