
Hvernig stendur íslensk ferðaþjónusta sig í öryggismálum og hvaða tækifæri felast í því að byggja upp „öruggasta land í heimi” fyrir ferðamenn?
Á þessum viðburði sameinum við raddir úr öllum hornum ferðaþjónustunnar og að utan til að horfa heildstætt á öryggi.
Við skoðum hvað gengur vel, hvar við getum gert betur og hvernig samvinna og samstillt átak getur eflt bæði öryggi og samkeppnishæfni.
Viðburðurinn fer fram á Hótel Kea, Akureyri, fimmtudaginn 9.apríl kl. 11:00 –13:00, en jafnframt verður hægt að fylgjast með í beinu streymi á Facebook.
Dagskrá:
"Frá atviki til umbóta. Kynning á nýju miðlægu skráningarkerfi." Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu
"Langflest slys eiga sér aðdraganda." Gauti Þór Grétarsson, öryggisstjóri hjá Samherja
"Þegar plan A bregst. Skipulag, viðbrögð og ákvarðanir fyrir örugga ferð." Inga Björk Svavarsdóttir, sölustjóri vetrarferða hjá Saga Travel
"Hlíðarfjall - öryggi og hlutverk". Guðmundur Magnússon, skíðagæslufulltrúi Hlíðarfjalli
"Viðhorfskönnun um öryggismál ferðaþjónustunnar" Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
Fundarstjóri: Viggó Jónsson framkvæmdastjóri Drangeyjarferða og stjórnarformaður Markaðsstofu Norðurlands.
Létt hádegishressing í boði og pallborðsumræður stýrt af Ágústi Elvari Bjarnasyni, verkefnastjóra hjá Samtökum ferðaþjónustunnar.
Þáttakendur í pallborði:
• Ólöf Ýrr Atladóttir, eigandi Sóti Summits
• Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri almannavarna hjá embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra
• Stefán Frímann Jökulsson, sérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun
• Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur hjá Ferðamálastofu
Frítt er á viðburðinn fyrir fyrirtæki og hagaðila í ferðaþjónustunni en skráning er nauðsynleg
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar á Akureyri er samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofu og Markaðsstofa landshlutanna
fimmtudagur, apríl 9, 2026, 11:00 - 13:00
Á næstunni
Stjórnandi, Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa, SAF, Markaðsstofur landshlutanna
Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋