Ríkisborgarar utan EES/EFTA svæðisins sem vilja starfa á Íslandi þurfa að fá atvinnuleyfi og dvalarleyfi til að geta dvalist löglega á Íslandi.
Útlendingastofnun sér um úthlutun dvalarleyfa og vegabréfsáritana á Íslandi. Umsóknum ber að skila til Útlendingastofnunar á höfuðborgarsvæðinu en til sýslumanns viðkomandi umdæmis á landsbyggðinni.

Ferlið
Atvinnurekandi sem hyggst ráða erlendan starfsmann frá ríki utan EES/EFTA svæðisins sem ekki er nú þegar með dvalarleyfi á Íslandi, gerir ráðningarsamning við starfsmanninn og sendir umsókn um tímabundið dvarlarleyfi vegna atvinnu til Útlendingastofnunar, ásamt öllum nauðsynlegum fylgigögnum (umsókn um atvinnuleyfi þ.m.t.). Starfsmaður er umsækjandi, en hlutverk atvinnurekandans er að leggja umsóknina inn til Útlendingastofnunar áður en viðkomandi kemur til landsins.
Starfsmaður má alls ekki hefja starf áður en atvinnuleyfi er gefið út. Það kann að leiða til synjunar á atvinnuleyfi og jafnvel sektar eða fangelsisdóms fyrir bæði atvinnurekanda og starfsmann.
- Atvinnuleyfi er yfirleitt gefið út til eins árs í senn en þó aldrei til lengri tíma en dvalarleyfi eða ráðningarsamningur gerir ráð fyrir. Vinnumálastofnun tekur við gögnum frá Útlendingastofnun og veitir atvinnuleyfið.
- Eftir að erlendi starfsmaðurinn kemur til landsins þarf hann að mæta til Útlendingastofnunar (eða sýslumanns utan höfuðborgarsvæðisins) með vegabréf að láta taka mynd af sér í dvalarskírteini og klára skráninguna.
- Atvinnuleyfið er skilyrt við tiltekinn atvinnurekanda svo vilji starfsmaður skipta um vinnu þarf að sækja um nýtt atvinnuleyfi. Starfmaður má ekki hefja starf hjá nýjum atvinnurekanda fyrr en nýtt leyfi liggur fyrir.
Hér á vef Work in Iceland má finna einfalda skýringu á ferlinu á ensku.
Tímabundið dvalarleyfi vegna atvinnu
Undanþágur frá atvinnuleyfi vegna skammtímavinnu
Ráðningarsamningur
Dvalarleyfi á Íslandi
Rafræn skilríki og stofnun bankareiknings
Heilsufarsskoðun
Sjúkratryggingar
Vinnustaðaskírteini
Tímabundið dvalarleyfi vegna atvinnu
Undanþágur frá atvinnuleyfi vegna skammtímavinnu
Ráðningarsamningur
Dvalarleyfi á Íslandi
Rafræn skilríki og stofnun bankareiknings
Heilsufarsskoðun
Sjúkratryggingar
Vinnustaðaskírteini