header image

Á öruggri leið? Á Akureyri 9.apríl kl.11

Hvernig stendur íslensk ferðaþjónusta sig í öryggismálum og hvaða tækifæri felast í því að byggja upp í „öruggasta land í heimi” fyrir ferðamenn?
Á þessum viðburði sameinum við raddir úr öllum hornum ferðaþjónustunnar og að utan til að horfa heildstætt á öryggi.
Við skoðum hvað gengur vel, hvar við getum gert betur og hvernig samvinna og samstillt átak getur eflt bæði öryggi og samkeppnishæfni.
Viðburðurinn fer fram á Hótel Kea, Akureyri, fimmtudaginn 9. apríl kl. 11:00–13:00, en jafnframt verður hægt að fylgjast með í beinu streymi á Facebook.

Dagskrá:

  • Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu
  • Gauti Þór Grétarsson, öryggisstjóri hjá Samherja
  • Inga Björk Svavarsdóttir, sölustjóri vetrarferða hjá Saga Travel
  • Guðmundur Magnússon, skíðagæslufulltrúi Hlíðarfjalli
  • Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
    Fundarstjóri: Viggó Jónsson framkvæmdastjóri Drangeyjarferða og stjórnarformaður Markaðsstofu Norðurlands.

Létt hádegishressing í boði og pallborðsumræður stýrt af Ágústi Elvari Bjarnasyni, verkefnastjóra hjá Samtökum ferðaþjónustunnar.

Frítt er á viðburðinn fyrir fyrirtæki og hagaðila í ferðaþjónustu.

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna

Skráning

Hæfni notar upplýsingarnar sem þú sendir til að svara erindinu. Forðastu óþarfa viðkvæmar persónuupplýsingar. Persónuvernd og réttindi þín.

PersónuverndVafrakökur