
Fyrirtækjamenning
Fyrirtækjamenning mótar hvernig unnið er innan fyrirtækis, hvernig samskipti fara fram, hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig brugðist er við áskorunum. Hún birtist í daglegu starfi og í upplifun gesta og starfsfólks. Oft er henni lýst einfaldlega sem „hvernig við gerum hlutina hérna“. Í ferðaþjónustu hefur fyrirtækjamenning bein áhrif á gæði þjónustu, öryggi og orðspor. Þjónustan er mannleg og byggir á trausti, samvinnu og fagmennsku. Þegar menningin er sterk og sameiginleg eiga starfsmenn auðveldara með að taka góðar ákvarðanir, jafnvel undir álagi eða í ófyrirséðum aðstæðum. Með markvissri vinnu geta ferðaþjónustufyrirtæki byggt upp menningu sem styður við starfsfólk, eykur samkeppnishæfni og styrkir upplifun gesta og þar með íslenska ferðaþjónustu í heild.
Hvernig birtist sterk fyrirtækjamenning?
Af hverju skiptir hún máli í ferðaþjónustu?
Viltu lesa meira? (enska)
Hvernig birtist sterk fyrirtækjamenning?
Af hverju skiptir hún máli í ferðaþjónustu?
Viltu lesa meira? (enska)
1.Hvernig birtist sterk fyrirtækjamenning?
Stjórnendur gegna lykilhlutverki í að móta og viðhalda fyrirtækjamenningu. Með skýrum tilgangi og sameiginlegum gildum er auðveldara að skapa sameiginleg viðmið um hvernig unnið er og hvernig þjónusta er veitt. Menning styrkist einnig þegar stjórnendur sýna fordæmi í hegðun og samskiptum, styðja við opið samtal og umbætur og tryggja að mótttaka og þjálfun nýlliða sé til fyrirmyndar. Slík vinna hjálpar til við að skapa traust, skýrari væntingar og stöðugri þjónustu. Í raun mótast fyrirtækjamenning ekki af stefnum einum saman, heldur af daglegum ákvörðunum og því hvernig fólk vinnur saman frá degi til dags.
Lykilskref til að byggja upp sterka fyrirtækjamenningu

Lausnir og verkfæri sem styðja við sterka fyrirtækjamenningu
Að byggja upp sterka fyrirtækjamenningu er samspil meðvitaðrar vinnu og lífræns ferlis. Hér eru nokkrar lausnir sem geta hjálpað ferðaþjónustufyrirtækjum að móta og styrkja menningu sína.

Góð starfsmannahandbók eflir fyrirtækjamenningu
Á stafrænu vinnusvæði okkar er einfalt að búa til eigin starfsmannahandbók

Hæfni TV
Á Hæfni TV finnurðu ýmis góð myndbönd sem snúa að fyrirtækjamenningu

Hvað finnst starfsfólkinu?
Á stafræna vinnusvæðinu finnurðu ýmsar kannanir um starfsánægju og fræðsluþarfir