þriðjudagur, mars 25, 2025

Opnir fundir um ferðaþjónustu vorið 2025

Hæfni
header image

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Áfangastaða- og Markaðsstofur landshlutanna bjóða ferðaþjónustuaðilum á opna fundi vorið 2025. Á fundunum verður sjónum beint að fjölbreyttum og spennandi viðfangsefnum, eins og starfsánægju, tækniþróun og gervigreind, sagnalist í ferðaþjónustu og fleira.

Alls verða sjö fundir um allt land. Dagskrá hvers fundar er sérsniðin að svæðinu og málefnin í takt við það sem brennur á ferðaþjónustunni hverju sinni. Á fundunum munu fyrirtæki og hagaðilar deila reynslusögum, góðum ráðum og ræða helstu áskoranir tengdar ferðaþjónustu.

Léttar veitingar verða í boði fyrir þátttakendur.

Hér má sjá yfirlit yfir dagsetningar fundanna. Nánari upplýsingar um dagskrá hvers fundar verða birtar á hæfni.is þegar nær dregur.

3. apríl: Borgarnes
9. apríl: Húsavík
10. apríl: Sauðárkrókur
28. apríl: Vestfirðir
30. apríl: Reykjanes
6. maí: Austurland
16. maí: Suðurland
Boðið verður upp á streymi/upptöku.

Við hlökkum til að sjá ykkur og hvetjum ykkur til að taka daginn frá.

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?