
Flokkun sem fjárfesting
Rétt flokkun er skilvirkt, arðbært og sýnilegt verklag sem styrkir rekstur ferðaþjónustufyrirtækja. Með skýrum merkingum og hnitmiðuðum leiðbeiningum lækkið þið sorpkostnað, minnkið kolefnisspor og sýnið gestum að sjálfbærni er hluti af daglegum starfsháttum.
Hér finnið þið allt sem þarf: Hvað fer hvar, hvernig best er að setja upp flokkunaraðstöðu í herbergjum, eldhúsum og móttöku, og hvernig þið virkjið bæði starfsfólk og gesti til þátttöku.
1
Fjárhagslegur ávinningur
2
Styrkt ásýnd og samkeppnishæfni
3
Samfélagsleg ábyrgð og framtíðarsýn
1
Fjárhagslegur ávinningur
2
Styrkt ásýnd og samkeppnishæfni
3
Samfélagsleg ábyrgð og framtíðarsýn
1.Fjárhagslegur ávinningur
Gott að hafa í huga við flokkun:


Lækkum kostnað
Vissir þú að ef skilið er eftir rusl á gólfi eða tunnur yfirfullar þá er rukkað auka losunargjald?

Sleppum pokum
Vissir þú að best er að fá endurvinnanlegt efni beint í tunnurnar því það er meiri vinna fyrir þjónustuaðila að tæma pokana?

Dýrt að nota svarta poka
Vissir þú að allir svartir pokar eru flokkaðir í óendurvinnanlegt almennt sorp sem er dýrari flokkur?