mánudagur, apríl 20, 2026
Ársskýrsla 2024

HANNA KATRÍN FRIÐRIKSSON arvinnumálaráðherra
MIKILVÆGASTA ATVINNUGREIN LANDSINS
Ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugrein landsins og lykilþáttur í verðmætasköpun og atvinnuuppbyggingu víða um land. Hún byggir á fólkinu sem starfar í greininni, á þekkingu þess, fagmennsku og getu til að veita framúrskarandi þjónustu í síbreytilegu umhverfi. Á árinu 2024 kom enn betur í ljós hve mikil áhrif alþjóðleg þróun hefur á starfsskilyrði ferðaþjónustunnar. Óstöðugt efnahagsumhverfi, stríðsátök, loftslagsáskoranir og ör tækniþróun kallar á aukna færni, aðlögunarhæfni og framsýni í rekstri og mannauðsmálum greinarinnar. Því er mikilvægt að fyrirtæki og starfsfólk í ferðaþjónustu hafi greiðan aðgang að efni sem styður við þá vegferð. Þar gegnir Hæfnisetur ferðaþjónustunnar lykilhlutverki.
Hæfnisetrið hélt áfram öflugu starfi á árinu við þróun hagnýtra verkfæra og fræðslu sem nýtist fyrirtækjum og starfsfólki um land allt. Meðal markverðra verkefna er innleiðing stafræns Ferðapúls sem veitir innsýn í stafræna stöðu fyrirtækja og styður þau í umbótum og þróun, með það að markmiði að bæta þjónustugæði, auka skilvirkni og efla samkeppnishæfni greinarinnar.
Stefna stjórnvalda í ferðamálum til ársins 2030 setur fram skýra framtíðarsýn um sjálfbæra, arðsama og samkeppnishæfa ferðaþjónustu í sátt við náttúru og samfélag. Mikil áhersla er þar lögð á að efla menntun og hæfni í greininni. Þegar hafa verið skipaðir starfshópar sem vinna að því að greina stöðu náms í ferðaþjónustu, móta tillögur um þróun námsleiða á öllum skólastigum og gera starfs- og námsleiðir aðgengilegri og sýnilegri fyrir fjölbreyttan hóp fólks. Þá er jafnframt lögð áhersla á að styrkja tengsl menntakerfis og atvinnulífs, efla kynningu og aðgengi að raunfærnimati og tryggja að nám í ferðaþjónustu verði þrepaskipt, hagnýtt og sveigjanlegt. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úr þessari vinnu liggi fyrir í lok árs 2025 og verði mikilvægur grunnur að áframhaldandi þróun náms og hæfniuppbyggingar í greininni.
Starf Hæfniseturs ferðaþjónustunnar styður með öflugum hætti við þessa framtíðarsýn. Í samstarfi við áfangastaðastofur landshlutanna, fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar, atvinnulífið og menntastofnanir hefur Hæfnisetrið unnið að því að þróa nýjar námsleiðir, auka aðgengi fyrir þá sem þegar starfa í greininni og styðja fjölbreyttan hóp fólks, til þátttöku og framþróunar í ferðaþjónustu.
Við eigum sameiginlega framtíðarsýn um íslenska ferðaþjónustu sem leiðandi atvinnugrein á sviði gæða og sjálfbærni. Hæfni, menntun og fagmennska verða áfram lykilstoðir í að styrkja stöðu hennar til framtíðar. Ég vil færa Hæfnisetri ferðaþjónustunnar, samstarfsaðilum þess og öllu því öfluga starfsfólki sem starfar í greininni innilegar þakkir fyrir mikilvægt og árangursríkt starf á árinu 2024 og hlakka til áframhaldandi samstarfs við að láta sýnina verða að veruleika.