• Jákvæð samskipti og mannauðsmál við krefjandi aðstæður

Jákvæð samskipti og mannauðsmál við krefjandi aðstæður

Miðvikudaginn 30. apríl. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Krossmóa 4a, Njarðvík
Fundartími 09:00 - 10:30

Fundarstjóri er Þuríður Halldóra Aradóttir forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness

Við þekkjum öll áhyggjur sem fylgja náttúruvá eða öðrum hamförum og áskoranir sem því fylgja.

Á fundinum munum við ræða hvernig markviss stuðningur og opið samtal geta verið lykillinn að því að byggja upp og viðhalda fagmennsku starfsanda á umbrotatímum. Með því að vera samstíga og deila upplifunum, getum við skapað umhverfi þar sem starfsfólk sækist eftir að efla sig, læra af öðrum og bjóða upp á framúrskarandi þjónustu, jafnvel þegar mikillar aðlögunar er krafist.

Jákvæð samskipti og stuðningur á milli starfsmanna og stjórnenda veitir innblástur, styrk og samheldni sem er nauðsynleg til að vaxa og blómstra á erfiðum tímum. Þess vegna hvetjum við alla í ferðaþjónustunni að taka þátt í þessum mikilvæga fundi og leggja sitt af mörkum í uppbyggilegar umræður.

09:00-09:10  Dagskrá hefst.

 „Forgangsröðum vellíðan starfsmanna í framtíðarsýn og stefnumótun ferðaþjónustunnar“  –  Ólína Laxdal og Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingar – Hæfnisetur ferðaþjónustunnar. 

Hvað viltu vita um kjarasamninga og starfsmannamál?“  Harpa Rún Glad, lögmaður á vinnumarkaðssviði – Samtök atvinnulífsins

 Mannauðsmál í breyttu landslagi“ –  Ægir Viktorsson, forstöðumaður á mannauðssviði – Bláa Lónið

Góð samskipti á vinnustaðnum“ – Steinunn Snorradóttir, námsbrautarstjóri – Isaviaskólinn 

Námskeið og fræðsla fyrir ferðaþjónustufyrirtæki“ – Hólmfríður Karlsdóttir, deildarstjóri fræðslu og Guðjónína Sæmundsdóttir forstöðumaður – Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Skráning á viðburðinn

Aðgangur að fundinum er frír og opinn öllum

Hafðu samband