Á fundunum verður sjónum beint að fjölbreyttum og spennandi viðfangsefnum, eins og starfsánægju, tækniþróun og gervigreind, sagnalist í ferðaþjónustu og fleira.

Alls verða sjö fundir um allt land. Dagskrá hvers fundar er sérsniðin að svæðinu og málefnin í takt við það sem brennur á ferðaþjónustunni hverju sinni. Á fundunum munu fyrirtæki og hagaðilar deila reynslusögum, góðum ráðum og ræða helstu áskoranir tengdar ferðaþjónustu.

Léttar veitingar verða í boði fyrir þátttakendur.

Hér má sjá yfirlit yfir dagsetningar fundanna. Nánari upplýsingar um dagskrá hvers fundar verða birtar á hæfni.is þegar nær dregur.

  • 3. apríl: Borgarnes
  • 9. apríl: Húsavík
  • 10. apríl: Sauðárkrókur
  • 28. apríl: Vestfirðir
  • 30. apríl: Reykjanes
  • 6. maí: Austurland
  • 16. Maí: Suðurland

Boðið verður upp á streymi/upptöku

Við hlökkum til að sjá ykkur og hvetjum ykkur til þess að taka daginn frá.

Hafðu samband