Síðastliðinn miðvikudag 30. apríl, hélt Hæfnisetrið til morgunverðarfundar á Suðurnesjum þar sem viðfangsefnið var jákvæð samskipti og mannauðsmál við krefjandi aðstæður. Fundurinn var haldinn í samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Reykjaness og Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum. Fjölmennur og fjölbreyttur hópur gesta tók þátt, bæði á staðnum og í beinu streymi.
Þessi mikla þátttaka kom ekki á óvart, enda hafa fyrirtæki og starfsfólk á svæðinu staðið frammi fyrir miklum áskorunum að undanförnu og fyrirséð að krefjandi tímar haldi áfram á Reykjanesi meðan eldvirkni er viðvarandi.
Það var aðdáunarvert að heyra hvernig fyrirtæki á borð við Bláa Lónið og Isavia hafa sinnt mannauðinum meðfram öðrum áskorunum og náð að sinna og halda vel utan um fólkið sitt með samheldni, samtal og umhyggju að leiðarljósi. Mannauðurinn er án efa dýrmætasta auðlind ferðaþjónustunnar og þegar starfsfólk upplifir gleði og ánægju í starfi eykst sköpunargleði þess og framleiðni, sem leiðir til betri árangurs fyrirtækisins.
Jákvæð vinnustaðarmenning stuðlar einnig að aukinni hollustu og minni starfsmannaveltu, sem er sérstaklega mikilvægt þegar fyrirtæki standa frammi fyrir mörgum og krefjandi áskorunum. Með því að leggja áherslu á starfsgleði og starfsánægju geta fyrirtæki byggt upp sterka og samheldna vinnustaðamenningu sem skilar sér margfalt þegar erfiðleikar banka á dyr.
Ýmis verkfæri og stuðningsefni sem styðja við góðan starfsanda má finna undir fræðslu- og stuðningsefni á síðunni okkar.