Ísafjörður tók vel á móti okkur

Glampandi sól og blíða tók á móti Hæfnisetrinu á Ísafirði nú á þriðjudaginn 29.apríl þegar við mættum til fundar um mikilvægi sagnalistarinnar eða “storytelling” í markaðssetningu ferðaþjónustufyrirtækja.  

Viðburðurinn er hluti af fundaröð sem Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofur landshlutanna standa fyrir á vordögum. 

Það var greinilega mikill áhugi á þessu viðfangsefni innan ferðaþjónustunnar og ekki einungis á Vestfjörðunum því af þeim 40 gestum sem mættu á fundinn í beinu streymi voru þó nokkrir héðan og þaðan af landinu. Enda er það ekki nema von, með sögutengdum fókus er nefnilega hægt að skapa sterkari tengsl við ferðamenn,  gera upplifun þeirra eftirminnilegri og auka áhuga þeirra á áfangastaðnum, menningu og íbúum. 

Myndir og sögur sem vekja forvitni og skapa hughrif segja meira en þúsund staðreyndir og tækifærin til að segja skemmtilegar og grípandi sögur eru víðar en marga grunar. Það er oft bara spurning um að opna augun fyrir því sem blasir við og virkja svo skynfærin til leiks þegar því er komið á framfæri. 

Hafðu samband