Ný viðbót við fagorðalista ferðaþjónustunnar

Nú er hægt að nálgast fimmtíu algenga frasa bæði gesta og starfsmanna á veitingastöðum á heimasíðu Hæfnisetursins. Frasarnir eru á þremur tungumálum og hægt er að hlusta á framburð frasanna á íslensku. Fyrir á síðunni er orðasafn algengra orða sem notuð eru í ferðaþjónustunni og geta auðveldað samskipti á vinnustað. Hægt er að velja orðalista fyrir móttöku, þrif og umgengni, eldhús, afþreyingu og þjónustu í sal.   

Dæmi um frasa: 

Gjörið þið svo vel 

Ég tala bara litla íslensku 

Hvað má bjóða ykkur? 

Takk fyrir komuna 

Sjá fagorðalista ferðaþjónustunnar hér 

Hafðu samband