Vefsíða Hæfnisetursins hefur verið uppfærð

Á undanförnum vikum og mánuðum hefur farið fram vinna við uppfærslu á vefsíðu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar. Hæfnisetrið vinnur fyrir fjölbreyttan hóp innan ferðaþjónustunnar og markmiðið með uppfærslunni er að þjóna honum sem best. Meðal annars með því að auka aðgengi að góðu fræðslu- og þjálfunarefni svo það nýtist greininni.

Í verkfærakistu Hæfnisetursins geta notendur nálgast fjölbreytt fræðsluefni og mælikvarða til að meta stöðu og árangur fræðslu.

Verkfæri fyrir fræðslu:

  1. Fagorðalisti ferðaþjónustunnar
  2. Fiskabúrið
  3. Þjálfun í gestrisni
  4. Rafræn fræðsla – Veistu appið
  5. Fræðsla í ferðaþjónustu – Handbók og fylgiskjöl fyrir verkefnastjóra
  6. Þarfagreining fræðslu

Árangursmælikvarðar til að meta árangur fræðslu:

  1. Starfsánægjukönnun
  2. Hulduheimsóknir á hótel
  3. Hulduheimsóknir í þjónustufyrirtæki
  4. Skráning kvartana

Í verkfærakistunni má jafnframt finna ýmis hagnýt námskeið sem eru í boði fjölbreyttra fræðsluaðila um land allt.

Markaðs- og kynningarmál skipa stóran sess í starfsemi Hæfnisetursins. Undir útgefið efni má finna viðtalsmyndbönd fyrir verkefnið Fræðsla í ferðaþjónustu ásamt ýmsu prentefni. Hæfnisetrið hefur leitt vinnu við stefnumörkun fyrir formlegt nám í ferðaþjónustu og miðlar efninu í skýrslunni Hæfni er grunnur að gæðum. Lesa má sér til um árangurinn af starfi Hæfnisetursins í ársskýrslum á sömu síðu.

Hafðu samband