Fagorðalisti ferðaþjónustunnar hlýtur viðurkenningu

Íslensk málnefnd veitti í gær Hæfnisetri ferðaþjónustunnar og Samtökum ferðaþjónustunnar viðurkenningu fyrir kennsluvefinn „Orðin okkar á íslensku“ sem ætlað er að auðvelda erlendu starfsfólki íslenskan orðaforða og auðvelda samskipti á vinnustað.

Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, og María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF og formaður stjórnar Hæfnisetursins, veittu viðurkenningunni viðtöku.

Hér má nálgast fagorðalistann.

Hafðu samband