VILTU ÞJÁLFA STARFSFÓLK?

Þjálfun í gestrisni er efni ætlað til þjálfunar og fræðslu á vinnustað. Starfsmaður í fyrirtækinu getur haldið utan um þjálfunina í samstarfi við vinnuveitanda eða fengið utanaðkomandi fræðsluaðila í verkið. Efnið byggir á fjölbreyttum sögum, stuttum eða löngum, af atburðarás sem átt hefur sér stað við ákveðnar aðstæður. Þjálfunarefnið miðast við fjóra starfaflokka sem eru:
• Móttaka og aðbúnaður
• Veitingar
• Þrif og umgengni
• Bílaleiga
Efnið er aðgengilegt öllum á íslensku, ensku og pólsku og það má nálgast það á heimasíðu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar www.haefni.is

Hafðu samband